- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
327

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

327

r #■

fullbúinn fyrr en 1848. A Uppdrætti Islands stendur ártalið

1844, en ætti að réttu lagi að vera 1848; árið 1844 var Björn

Gunnlaugsson ekki búinn með nærri öll frumritin og sendi

hin seinustu kort sin til Hafnar 1846.1 Meðan var verið að

gefa út kortin þurfti margs að gæta. A uppdráttum Björns

Gunnlaugssonar, sem voru eptir stærra mælikvarða, voru

miklu fleiri nöfn en á hinum prentaða uppdrætti, þar var allur

þorri bæjanafna og mörg örnefni önnur; af því nú uppdrátturinn

var minnkaður (og gefinn út með mælikvarða 1: 480,000) varð

að sleppa fjölda nafna og var þá opt úr vöndu að ráða hverju

halda skyldi. Jón Sigurðsson annaðist þetta vandaverk og

valdi þau nöfn á kortið, er honum þóttu mestu varða; hann

las og prófarkir á nöfnunum og er slikt heldur ekkert áhlaupa-

verk, þegar þeir, sem teikna og stinga eru útlendir; Jón Sig-

urðsson leysti þetta verk af hendi með sinni vanalegu vand-

virkni, svo varla mun hægt að finna prentvillu i öllum nafna-

grúanum. Jónas Hallgrimsson, sem viða var kunnugur á

landinu, aðstoðaði Olsen einnig i mörgu, einkum að því er

snertir landslagslýsingu.2 Uppdrátturinn var að öllu gjörður

með hinni mestu vandvirkni, koparstungan er bæði fögur og

skýr, svo hún mun á fáum kortum betri. Meðan Olsen hafði

hinn stóra uppdrátt í smíðum, fékk hann stvrk stjórnarinnar3

t

til þess að gjöra minna kort af Islandi (meö mælikvarða
1:960,000). en andaðist áður en það verk var fullgjört;
Bók-menntafélagið keypti svo þenna uppdrátt af ekkju Olsen’s og
lét prenta hann á sinn kostnað.

A »Uppdrætti íslands«4 er nafn Olafs Nikolas Olserís5

J) Skýrslur og reikningar 1847. bls. 4.

’) Meðal annars skýrði Jónas frá landslagi á öræfum upp af
Vestur-Skaptafellssvslu. en I. C. Schythe frá nágrenni Heklu og Torfajökuls.

s) Lovsamling for Island XIV. bls. 124—125.

4) Uppdráttur Islands gjörður að fyrirsögn Olafs Nikolas Olsens
eptir landmælingum Bjarnar Gunnlaugssonar. er styðjast við
þríhyrn-ingamál og strandamælingar þær, sem hið konunglega Rentukammer
heSr látið gjöra og reiknað hefir Hans Jakob Scheel; gefinn út af enu
íslenzka Bókmenntafélagi. Reykjavík og Kaupmannahöfn 1844. Grafið
hefir F. C. Holm.

5) Oluf Nikolai Olsen var fæddur í Kjöge 4. marz 1794; hann gekk

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0335.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free