- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
326

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

326

fullbúinn fyrr en 1844. Hinir framsýnni menn sáu. að þetta
var óráð, Tómas Sæmundsson sagði einsog satt var »hver
veit hvað lengi við höldum Gunnlögsen og landið er stórt®.1
Fæstir meðlimir Bókmenntafélagsins munu hafa þekkt til
mælinganna, hve öröugar þær voru og hlutu aó taka mjög
langan tima; 1838 stendur i fundarskýrslu
Bókmenntafélags-ins: »Menn eru farnir að verða mjög langevgðir eptir kortinu
yfir Sunnlendingafjórðunginn og eptir að sjá einhvern ágóða
og árangur af peningum þeim, sem félagið í svo mörg ár
hefir lagt í sölurnar þessu fyrirtæki til framkyæmdar*.2 Þá
kom lika fram uppástunga um, að félagið sendi tvo
landmæl-ara danska, annan til Austurlands og hinn til Vesturlands, til
þess að mæla á báðar hliðar við Björn Gunnlaugsson, en
for-seta þótti þetta ónærgætið við Björn. að minnsta kosti fvrr en
Sunnlendingafjórðungur væri búinn, enda væri heldur ekkert
fé fyrir hendi. 1 uppástungu þessari var lika lítið vit, félagið
mundi ekki hafa getað fengið neina útlendinga, sem hefðu
getað ferðast einsog Björn og afkastaó jafnmiklu. og svo hefðu
slikir menn orðið margfalt dýrari.

Kortin yfir Sunnlendingafjórðung voru fullbúin frá Björns
hendi 1839, en þá var eptir að steypa kortunum saman,
minnka þau og teikna undir stungu, og tekur Olseti að sér
að sjá um það og segist muni láta bvrja teiknunina þegar
hann fái frá major Scheel hinn trigonometriska ramma. sem
að undanförnu hafði verið í smíðum undir tilsjón og
fyrir-sögn Olsen’s og útheimti það margbrotna og langa reikninga.
Olsen lofar að sjá um, að rentukammerið kosti stungu
kort-anna og annað, er þvrfti, þvi 500 rd. styrkur sá. er
vísinda-félagið hafði lagt til, mundi varla hrökkva til teiknunar og
minnkunar hins fyrsta fjórðungs.3 Fvrsti fjórðungurinn var
þó ekki búinn fyrr en 1844, en allur uppdrátturinn var ekki

Tímarit Bókmenntafélagsins XVII. 1896, bls. 167.

’) Skírnir XII. 1838, bls. 63—64.

3) Skírnir 1839. bls. 76. Árið 1840 getur Olsen þess. að stungan
ein af fyrsta fjórðungi muni að minnsta kosti kosta 1000 rd., auk alls
annars. teiknunar, prentunar og pappírs (Skýrslur og reikningar 1840.
bls. 5—6).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0334.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free