- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / IV. /
91

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

91

Veturinn 1873—74 bjó dr. Kaalund í Hjarðarholti hjá
Theo-dor Jonassen, sem þá var sýslumaður í Mýra- og
Borgar-fjarðarsýslum. en fór þó smáferðir þaðan um vorið 1874,
fyrst til Revkjavikur í marzmánuði landveg um Leirá út á

r

Akranes og þaðan sjóveg báðar^leiðir. I júnimánuói og
fram-anaf júlí fór Kaalund um Þverárhlíð og Hvítársíðu og
ýms-ar sveitir i Borgarfirði, þá skoðaði hann einnig Surtshelli og
gekk upp á Súlur.

Sumarferðin 1874 hófst frá Hjarðarholti 4. júlí og fór dr.
Kaalund nú um Mýrar. Hítardal, Hnappadalssýslu og út í
Staðarsveit; þaðan kringum Snæfellsnes allt inn í
Stykkis-hólm og dvaldi hann þar nokkra daga. Síðan fór Kaalund
um Skógarströnd og Dali. Hvammssveit, Skarðsströnd og
Saur-bæ til Gilsfjarðar, þaöan um Barðastrandarsýslu, landveg
kringum alla firði að Brjámslæk; þá yfir Lækjarheiði í
Trost-ansfjörð, til Geirþjófsfjarðar og vfir Dynjandaheiði til
Arnar-fjarðar. Svo fóru þeir út rneð Arnarfirði að norðan og yfir
heiði að Söndum í Dýrafirði og skoðaði Kaalund þaðan
ná-grennið og fór svo yfir Glámu til Vatnsfjarðar við
Isa-fjarðardjúp, þaðan fór hann smáferðir r Ögur, Æðey og
Vig-ur og til Snæfjallastrandar, svo að Laugabóli og þaðan
Stein-grímsfjarðarheiði að Stað í Steingrimsfirði. Siðan fóru þeir
kringum Kollafjörð og Bitrufjörð til Hrútafjarðar og svo um
Miófjörð i Víðidal. um Vatnsdal og Svinadal til Skagafjarðar
og um sveitir vestan Héraðsvatna, einnig út í Drangey. Þá
héldu þeir til Hóla í Hjaltadal og Heljardalsheiði í
Svarfaðar-dal. svo inn með Eyjafirði til Hörgárdals og Öxnadalsheiði til
Skagafjarðar, svo um Vatnsskarð, upp Vatnsdal og svo suður
Grimstungnaheiði og lágu þar nótt í tjaldi við
Dauðsmanns-kvisl. Þaðan héidu þeir sem leið liggur til Kalmannstungu
og svo Kaldadal til Þingvalla. Að lokum skoðaði Kaalund

dalur. Vikingavatn. Húsavík, Grenjaðarstaður. J>verá. Reykjahlíð.
Gaut-lönd. Stóruvellir í Bárðardal, Ljósavatn, Háls, þverá. Brettingsstaðir,
Laufás, Syðri-Varðgjá. Munkaþverá. Saurbær. Akureyri. Steinsstaðir.
Miklibær. Stóridalur. Stóra-Borg, Melstaður. Melar. Hvammur í
Norður-árdal. Hjarðarholt.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:46 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/4/0103.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free