Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
90
land allt. Veturinn 1872—73 dvaldi dr. Kaalund í Reykjavík,
en brá sér um vorið snöggva ferð til Kjósarsýslu og á
Þing-vallafund. I aðalferðina lagði hann 2. júli 1873 og var
Magnús Andrésson, sem nú er prófastur á Gilsbakka,
fvlgdar-maður hans. Fóru þeir austur Hellisheiði og um Ölfus, Flóa
og Grímsnes aó Þingvöllum, siðan um Laugardal til Geysis
og Haukadals, þaðan til Skálholts og um Hreppa í
Þjórsár-dal. Þvínæst skoðaði Kaalund sögustaði í Rangárvallasýslu.
hafði aðsetur á Breiðabólsstað og fór þaðan smáferóir, svo
lagði hann aptur á stað austur Eyjafjallasveit, um
Skaptár-tungu, Síðu og Fljótshverfi og þaðan sem leió liggur sunnan
jökla austur í Breiðdal, svo upp á Fljótsdalshérað og dvaldi
um hríð á Hallormsstað og brá sér þaðan meðal annars yfir
fjall í Hrafnkelsdal. Af Héraði fór Kaalund upp að Hofteigi
á Jökuldal, svo i Vopnafjörð og að Grimsstöðum á Fjöllum,
r
siðan niður með Jökulsá að Dettifossi og Asbvrgi í
Keldu-hverfi; úr Kelduhverfi fóru þeir Tunguheiði á Húsavik og
þaðan upp Laxárdal að Mývatni, siðan um Gautlönd i
Bárð-ardal, svo um Ljósavatnsskarð og út Fnjóskadal. allt út á
Flateyjardal, þaðan svo að Laufási og inn Svalbarðsströnd
til Akureyrar 12. september. Úr Eyjafirði fór Kaalund
vana-lega þjóðleið vestur og suður Holtavörðuheiði að Hjarðarholti
í Stafholtstungum og var ferðinni lokið hinn 22. september1.
’) 1 íslands-lýsingu dr. Kaalund’s er engin ferðasaga. og þvi er opt
örðugt að greina hvað höf. hefir sjálfur séð og hvað hann hefir eptir
öðrum. Eg hefi hér sagt ítarlega frá ferð hans. af þvi eg hygg það
hafa þýðingu fyrir framtíðina. að fá glöggva hugmynd um leið þá. er
hann hefir farið. Bezt yfirlit yfir rannsóknina fæst þó með pví að
nefna gistingastaði og setjum vér þá því einnig hér. Á sumum
bæj-um gisti dr. Kaalund nokkrar nætur, til þess að skoða nágtennið.
Sumarið 1873 voru gistingastaðirnir þessir: um vorið á ferð um
Kjós-arsj’slu, Mosfell og Saurbær; á aðalferðinni: Reykjakot, Arnarbæli.
Eyrarbakki, Hraungerði, Mosfell, þingvellir, Geysir, Haukadalur,
Skál-holt. Hruni, Ásar, Stóru-Vellir. Kirkjubær. Oddi, Breiðibólsstaður, Holt.
Skógar. Höfðabrekka, Hlíð, Prestbakki, Kálfafell. Skaptafell.
Hnappa-vellir. Kálfafellsstaður. Hoffell. Papós. Stafafell, Hof. Djúpivogur,
Hösk-uldsstaðir, Hallormsstaður, Valþjófsstaður, Aðalból í Hrafnkelsdal,
Hall-freðarstaðir, Hofteigur, Hof í Vopnafirði, Grímsstaðir á Fjöllum, Svína-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>