- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / IV. /
96

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

96

Þegar fréttist til Danmerkur um hin stórkostlegu gos á
Islandi 1875, stakk Fr. Johnstrup upp á því við stjórnina 25.
ágúst 1875. að stofnað væri til jarðfræóisrannsókna í hinurn
norrænu löndum, er tel.jast undir Danaveldi, einkum á
Græn-landi, en þó einnig á Islandi að þvi er snerti hin miklu
elds-umbrot, sem þá voru nýlega orðin1. Rikisþingið veitti því
einnig fé til að rannsaka eldfjöllin í Þingeyjarsýslu2 og fól
Johnstrup á hendur framkvæmdina. Með honum voru í
för-inni Caroc sjóliðsforingi og stúdentar tveir Jolian Howitz og
porvaldur Ihoroddsen; þeir fóru frá Kaupmannahöfn 28. mai
1876 og komu til Revkjavíkur 8. júní; hinn 12. s. m. fóru
þeir með herskipinu »Fylla« áleióis til Akurevrar, vestur um
land, töfðust af hafís og urðu að liggja nokkra daga á
ísa-firði og Aðalvík og komust ekki á Akureyri fvrr en 22. júní.
Landferðina bvrjuðu þeir 26. júní og fóru vanalega leið um
Ljósavatnsskarð í Bárðardal og síðan upp dalinn að
Halldórs-stööum og svo að Svartárkoti. Þaðan fóru þeir Johnstrup
og Caroc beina leið upp í Dyngjufjöll með verkfæri, nesti og
tjöld. Ofærð mikil var af snjó i Jónsskarði og gekk öróugt
að koma hestunum. Tjöld voru sett norðan til í Öskju
ná-lægt Jónsskarði; dvöldu þeir Johnstrup og Caroc þar rúma
viku, en hestar ailir og fylgdarmenn sneru aptur niður að
Svartárkoti. Caroc mældi Öskju og niðurvarpið, en
John-strup fékkst við jarðfræðisrannsóknir. Þetta var í fyrsta
sinn, að nokkurt eldfjall í Ódáðahrauni var rannsakað á
vís-indalegan hátt. Veður var gott framanaf, en eptir 5 daga
fór það að versna, og komu þá kafaldshríðir og dimmviðri;
fóru þá tveir af fylgdarmönnum Johnstrup’s frá Svartárkoti
upp að fjöllum til þess að sækja þá félaga, en villtust, komu
hestunum ekkert fyrir ófærð, og urðu að hverfa aptur við
svo búiö. Næsta dag (8. júli) var veðrið betra, og tókst þá
að ná þeim úr Öskju heilum á húfi. Síðan skoðuðu þeir

’) Fr. Jolmstrup: Allerærbödigst Andragende angaaende danske
geologiske Undersogelser fra Begyndelsen af Finansaaret 1876—77.
Kbhavn 1875, 4°.

’) 7000 kr. voru veittar, þaraf voru 6000 brúkaðar til ferðarinnar,
en 1000 kr. til að gefa út skýrslur Johnstrup’s.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:46 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/4/0108.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free