- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / IV. /
108

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

108

Einsog fvrr hefir verið drepið á, var mjög mannkvæmt

i

á Islandi sumarið 1856 af tignum ferðamönnum, hér komu
þá auk margra annara prinz Jerome Napoleon, prinz
Vil-hjálmur af Oraníu og lord Dufferin. Franska stjórnin hafði
árinu áður mælst til að fá ítak nokkurt til nýlendustofnunar
og fiskverkunar á Dýrafirði1, þetta fórst þó fyrir og varð
ekk-ert af nýlendustofnuninni. enda var Englendingum eigi vel við

r

að Frakkar settust að á Islandi og Dvrafjöróur er hið bezta
herskipalægi; það var jafnvel haft á orði að Dufferin mundi
sendur af ensku stjórninni til þess að hafa gætur á
Frökk-um og franska prinzinum, hvað þeir að hefðust á Islandi.
Flestir þessir ferðamenn fóru aðeins til Gevsis, en i
Reykja-vik voru miklar veizlur og hátíðahöld, því það voru þá
miklar nýungar, að svo tignir menn kæmu hér til lands2.
Lord DujJ’erin ritaði bók um ferðina3 og er hún mjög vel
samin einsog búast mátti við af slíkum gáfumanni og
rit-snillingi. Bókin er eingöngu skemmtibók og 1 henni engar
visindalegar nýjungar. en þar eru margar ágætar
náttúrulýs-ingar, svo bókin mun jafnan hafa gildi, þvi hún gefur
útlend-ingum góða hugmvnd um landið. Af lýsingunum má
sér-staklega nefna grein höf. um innsiglingu á Faxaflóa4 og um
mismuninn á útliti Islands i góðu veðri og vondu-. Höf. er
laus við alla hleypidóma og tekur hlutina einsog þeir eru,
hann hefir opið auga fyrir náttúrunni, hlýtt þel til
þjóðarinn-ar og þekkir allvel sögu landsins. Af skemmtiferðabókum
enskum. sem vér höfum séð, er bók Dufíerins langbezt rituð.
Um ferð Napoleons prinz ritaði Charles Edmond stóra bók5,

’) Alþingistíðindi 1855, bls. 494—495.

J) þjóðólfur VIII. bls. 93, 109-110. 117—118. 121. 129—131,
137—139.

3) Lord Dufferin; Letters from high latitudes; being some account
of a voyage, in 1856, in the schooner yacht »Foam«, to Iceland. Jan
Mayen and Spitzbergen. London 1857. 8°, 5. Ed. 1867, 8° (252 bls.).
þar um ísland bls. 29—130. Þýzk útgáfa. Braunschweig 1860, 8°.

4) Lj;sing þessa hefir Jón Sigurðsson þytt í •Litilli Fiskibók«.
Kmhöfn 1859, bls. 3—4.

5) Charles Kdmond: Voyage dans les mers du Nord, á bord de la
corvette »La Reine Hortense«. Paris 1857. 4° (632 + 146 bls.).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:46 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/4/0120.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free