Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
125
stóö, sendi hinum fræga þýzka náttúrufræðingi Chr. O. Ehren-
berg (1795—1876) öll sýnishorn af botnleöju, er upp höföu
náðzt við mælingarnar og fann Ehrenberg í þeim fjölda marg-
ar tegundir smádýra, sem hann rannsakaði og lýsti í sérstakri
ritgjörð1. (jt. Forchhammer rannsakaði manna mest sævar-
seltu í úthöfum og samdi um það ágæt rit, sem enn hafa
fulla þýðingu og eru grundvöllur fyrir kunnáttu manna i
f
þeirri grein2. Rit þessi snerta einnig höfin við Island og auk
þess skrifaði Forchhammer 1863 sérstaka ritgjörð um efni
t
sævarins milli Islands og Grænlands3. Forchhammer hafði
fengið mörg sýnishorn af sjóvatni á leið frá Islandi til
suöur-odda Grænlands og komst að þeirri niðurstöðu. að
straumur-inn þar ekki væri eiginlegur pólstraumur, heldur líklega grein
af golfstraumi, sem hringar sig kringum Island. Síðan hafa
menn fundið að sævarefni og sævarhiti yfirborðsins i
Dan-merkursundi er mjög mismunandi eptir árferði, eptir þvi hver
af straumunum hefir yfirhönd. Haagen Mathiesen skrifaði
1864 ritgjörð um strauma og hafis i hinu norðlæga
Atlants-hafi4, einkum við Isiand og gaf út uppdrátt vfir straumana.
Mathiesen hafði hjá Jóni Sigurðssyni fengið að láni íslenzkar
veðurbækur, er Bókmenntafélagið hafði safnað og haföi í
þeim séð ýmislegt um hafís við strendur Islands; kemst hann
að þeirri niðurstöðu að hafis komi að íslandi úr N. og
NV-á öllum timum ársins nema frá því um ágúst-lok til miðs
október; á árunum 1800—1861 telur hann ís hafa komið 50
sinnum, optast fyrst að Horni og Langanesi; frá Aðalvík að
’) Chr. G. Ehrenbeyy: Ueber Tiefgrund-Verháltnisse des Oceans
am Eingange der Davisstrasse und bei Island (Monatsberichte d. k.
preuss. Akademie d. Wissenschaften in Herlin. 1861, I. bls. 275 — 315).
2) G. Forchhammer: Om Sövandets Bestanddele og deres Fordeling
i Havet. Kbhavn 1859, 4°. On the composition of sea water in the
different parts of tbe ocean (Philos. Transactions. London 1865. Vol.
155, bls. 203 262j.
3) G. Forchhammer: Vandets Sammensætning i det nordlige
At-lanterhav (Vjdensk. Selskabs Oversigter 1863, bls. 107-115).
4) Haagen Mathiesen: Strömningernes Beliggenhed og Drivisens
Forekomst i det nordlige Atlanterhav og tilgrændsende Polarhave
(Tids-skrift for Sövæsen IX. 1864, bls. 1 — 12).
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>