- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / IV. /
135

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

135

í hinni stóru veðurfræði eptir L. Fr. Kdmtz er t. d. tafla
yfir árshita og meðalhita mánaða á Akureyri samkvæmt
at-hugunum Scheel’s1 og það yfniit notuðu margir síðan fram
yfir miðja 19. öld. James H. Coffin, sem reit stóra bók um
vinda á norðurhveli jarðar2 fer einnig eptir athugunum
Scheel’s á Akureyri, en eptir athugunum Gladstone’s og Park’s
að því er snertir Reykjavík, hefir höf. auðsjáanlega ekki
þekkt rannsóknir Jóns Thorstensen’s, sem þá voru þó fyrir
löngu komnar á prent. Jón Thorstensen landlæknir (1794—
1855) bvrjaði 1822 með tilstilli vísindafélagsins danska að
at-huga veðráttufar i Reykjavík og hélt því áfram um langt
ára-bil. Visindafélagið lét prenta athuganir Jóns landlæknis á
árunum 1823—1837 í sérstakri bók3, þar er skýrt frá
lopt-þyngd og hita einu sinni á degi hverjum, frá vindum,
skýja-fari o. fl.; hefir S. Holmstedt dregið almennt vísindalegt
yfir-lit út úr athugununum. Pað vakti þegar í byrjun athygli
manna, hvaö loptþyngdin var að jafnaði lítil á Islandi, í
samanburði við önnur lönd og efuðust menn fyrst um að
loptþyngdarmælir Jóns Thorstensen’s væri réttur, svo
vísinda-félagió sendi annan mælir til Revkjavíkur til samanburðar,
en það sýndi sig að báðir mælarnir voru hver öðrum
sam-kvæmir. Þá ritaði hinn nafnkunni náttúrufræðingur J. F.
Schouw (1789—1852) greinir4 um veðráttufar á íslandi og

’) L. Fr. Kdrntz: Lehrbuch der Meteorologie. Halle 1881—36.
II. Bd. 1832. bls. 88. þar er meðalhiti ársins á Akureyri talinn +0°.18
C.. vetur 6°,2, vor -f- 2,17, sumar -f 7.7. haust + 1,4. Nú hafa
menn miklu nákvæmari athuganir.

a) James H. Coffin: Winds of the Northern Hemisphere
(Smith-sonian Contributions to Knowledge. Washington 1854. VI. 4°. bls. 30
og 145).

3) Observationes Meteorologicæ a 1. Jan. 1823 ad 1. Aug. 1837 in
Islandia factæ a Thorstetisenio medico. Hafniæ 1839, 4° (234 bls.). Sbr.
Berlin. Jahrbiicher fiir wissensch. Kritik 1840. I. bls. 852.

4) Det kgl. danske Videnskabernes Selskabs naturvidenskabelige og
mathematiske Afhandlinger III. Deel. Kbhavn 1828. 4°, bls. xxix—xxxii
og Vidensk. Selsk. Oversigter 1824—25, bls. 20—24. J. F. Schoutv:
Nogle Bemærkninger om Vejrliget i Island i Vinteren 1824—25 efter
Landpliysicus Thorstensens Iagttagelser (Tidsskrift for
Naturvidenska-berne Kbhavn 1826, IV. bls. 259-262).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:46 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/4/0147.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free