Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
168
ritin en hafa farið eptir riti Halldórs Jakobssonar og öðrum
óáreiðanlegum ritum. Um einstök eldgos hafa á seinni hluta
19. aldar verið skráðar margar greinir í alþýðlegum
tímarit-um og blöðum í útlöndum og er margt af því talið í bók
minni um sögu íslenzkra eldfjalla, þó flest af því sé
ómerki-legt. Mest var ritað um eldgosin úr Öskju og Sveinagjá 1875
og ýmsir vísindamenn rannsökuðu ösku þá, sem vindurinn
bar til Skandínavíu, bæði efni hennar og eðli og áhrif þau,
sem loptstraumar höfðu á flutning hennar yfir hafið1).
Um almenna jarðfræði islenzkra eldfjalla var margt ritað
á strjálingi og má í rauninni segja, að allar
jarðfræðisrit-gjörðir um Island snerti það efni að einhverju leyti, því
Is-land er allt byggt úr gosgrjóti og jarðfræðissaga landsins
verður því eiginlega eintóm eldgosasaga að fornu og nýju.
Snemma urðu menn þess varir, að eldfjöllin á íslandi eru
aðallega bundin við sprungustefnur frá SV. til NA. og Sart.
v. Waltershausen tekur það fram, að eldvörpum á íslandi sé
raðað eptir jafnhliða línum, en stór, miðsett gosfjöll séu þar
óalgeng og hvergi séu þar hafningsbogar eða hringfjöll
kring-um hin eiginlegu uppvörp. Waltershausen getur þess einnig,
að gossprungurnar vikja sumstaðar nokkuð frá hinni almennu
norðausturstefnu og finnur, að gígaröð Leirhnúks hefir stefn-
Gould: Iceland, its Scenes and Sagas. London 1863, bls. 21 — 23.
Preyer und Zirkel: Reise nach Island. bls. 435—475. K. E. A. v.Eojff:
Geschichte der durch Ueberlieferung nachgewiesenen naturlichen
Veránderungen der Erdoberfláche. I,—V. Gotha 1821—41, 8°. L. Meyn:
Zur Chronologie der Paroxysmen des Hekla (Zeitschr. d. deutsch.
geol-Gesellschaft VI. 1854, bls. 291—299). L. Meyn fer eptir riti Jónasar
Hallgrímssonar um sögu íslenzkra eldfjalla og mun hafa fengið
hand-ritið að láni hja Jap. Steenstrup.
’) H. Molin: Askeregnen den 29. —30. Marts 1875 (Forhandlinger
i Vidensk. Selskab i Christiania Aar 1877. Chria. 1878, Nr. 10).
F. Zirkel: Vulkanische Asche, die vom 29. auf den 30. Márz 1875 in
Norwegen fiel (Neues Jahrbuch fiir Mineralogie 1875, bls. 399—401).
E. Nordenskiöld-, Distant transport of volcanic dust (Woodward’s
Geol. Magazine 1876, bls. 292—297). G. vom Rath í Neues Jahrbuch
fiir Mineralogie 1875. bls. 506—517; 1878, bls. 52-53 og Verhandl.
natur. Vereins f. preuss. Reinlande. Jahrg. 32, bls. 137—144. 154—161.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>