- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / IV. /
178

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

178

fjörumáli og hátt uppi í fjöllum; hélt hann, að rákir þessar
hefðu myndazt aí áhrifum isreks og lagnaöariss meðan landið
smátt og smátt yar að rísa úr sjó; á forna útbreiðslu jökla
um alt land trúir hann ekki, en vill þó eigi neita því, að
jökl-ar nútímans kunni að hafa nokkur áhrif; hann lýsir meðal
annars Arnarfellsjökli, lögum í ísnum og þreföldum
jökulöld-um við rönd hans. Hugmyndir sumra manna um almenna
isöld kallar Waltershausen bábylju eina og »andvana fæddan
jarðfræðis-óburð«, sem brátt muni verða jarðsunginn og moldu
ausinn1). Aðrir framúrskarandi jarðfræðingar, einsog t. d.
Forchhammer og Leopold von Buch, voru þá einnig á sama
máli. H. v. Mathiesen og R. Bunsen, sem ferðuðust sama

r

sumar á Islandi, hneigðust sem fyrr var getið að kenningu
hinna svissnesku jarðfræðinga; þeir ætluðu, að Island hefði
allt verið jöklum hulið og athuguðu isrákir og jökulruðning
allstaðar er þeir fóru2). Th. Kjerulf rannsakaði 1850 fyrstur
ísaldarmenjar í samhengi á Islandi, enda var hann ákafur
áhangandi isaldar-kenninganna og færði mörg rök til að sanna
tilveru fornrar jökulbreiðu vfir Skandínaviu, en eigi vildi hann
fara jafnlangt eins og sumir hinir yngri jarðfræðingar t. d.
A. Helland og aðrir, er hugðu alla dali, firði, vötn og lægðir
útsorfnar af jöklagangi. Kjerulf mældi allviða stefnu ísráka i
þeim héruðum á Islandi, er hann fór yfir,3) og nokkrum árum
siöar athugaói R. Cliambers frá Edinburgh ísrákir næyri
Revkjavik4), Th. Kjerulf lýsti jökulmyndun í Skarðsheiði og
getur um hart ísnúið hnullungaberg á Holtavörðuheiði og
segir hann, að slíkt hnullungaberg sé víða í lægóum
hálendis-ins og á stöku staö í dölunum6). Winkler lætur ekki í ljósi
skoðanir sínar um ísöldina, en getur um fágaðar klappir á
stöku stað. Paijkull er aptur á móti all-fjölorður um isaldar-

Phys.-geogr. Skizze von Island, bls. 12—23.

3) Neues Jahrbuch fur Mineralogie. Jahrg. 1847, bls. 44—47 og R.
Bunsen: Auszug eines Schreibens an J. J. Berzelius, bls. 4—5.

3) Bidrag til Isl. geogn. Fremst., bls. 56—57.

4) R. Chambers: Tracings of Iceland and the Faröe Islands. Edin-

burgh 1856, bls. 37.

Bidrag, bls. 45, 46.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:46 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/4/0190.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free