Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
244
hafa þeir ekki náð sér síðan; loginn úr fjallinu sást langt að:
þá urðu landskjálftar og hræðilegir brestir, dagsbirtan hvarf
af ösku, sem barst með vindi í fjarlæg héi uð, og urðu jökiar
svartir af henni. Ibúar nálægra héraða flýðu í aðrar sveitir.
Gosið hélzt allt sumarið, fór að réna um bvrjun vetrar, en
hætti ekki alveg fyrr en undir næsta vor (1637). Síra
Þórð-ur talar dálitið um ýms dýr á Islandi og um ýmsa sjúkdóma
og getur þess, að mjög sé það misjafnt, hve snemma menn
verða gráhærðir og sköllóttir, sumir ekki fyrr en áttræðir,
sumir þritugir.
I öðru bréíinu (1656) telur sira Þórður íslenzka farfugla
og staðfugla þá, sem dvelja þar allt árið. Höggorma segir
hann enga vera á Islandi og heldur ekki froska eða
mold-vörpur. I þriðja bréfi (1664) svarar sira Þórður ennfremur
ýmsum spurningum Browne’s, fyrst um Frisland. Segir
Þórð-ur, að Islendingar hafi ekkert heyrt eða séó um það land
annað en þaó. sem sjá má af sjóbréfum, en sjómenn finni
heldur ekki ey þessa; menn ætla því, að annaðhvort hafi
Frisland aldrei verið til eða það sé sokkið í sjó; hann telur
það líka óliklegt, aó svo sé sem sumir halda, að Frisland sé
hið sama og Vinland hió góóa, er íslendingar fundu, það
mun hafa verið ey eða fastaland sunnar með heitara
lopts-lagi og halda sumir. að það hafi verið partur af Norður-
r
Ameriku, er menn ætla að sé áföst við’ Grænland. A
Græn-landi segir sira Þóróur að Danir hafi fundið litt skynjandi
fólk, er ekki vissi grein góðs né ills, hafði engan guð, enga
trú og lifði á villidýrum, selum og hvölum; ekki skildu Danir
mál þeirra né bendingar og gátu ekki bliðkaó þá með
góð-vilja eða fagurmælum. Um rekavið segir síra fórður, að
hann muni koma frá Grænlandi og rekist af vindum til
ís-lands; þeir, sem siglt hafa um hafið milli Grænlands og
Islands, hafa fundið rekavið innan um ísinn: sira Þórður
ætlar þó, að rekaviðartrén muni hafa uppruna sinn frá Noregi
og Finnlandi. því þó lönd þessi nái lengra norður en Island,
þá eru þau þó skógivaxin, en Island er skóglaust, en
for-sjónin jafnar allt og sendir Islendingum húsavið á þennan
hátt. Eigi kveðst hann geta skorið úr því, hvort sjóargangur
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>