- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
1

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

I. Hnattstaða íslands og stærð.

r

Norðarlega í miðju Atlantshaíi liggur Island fjarri öðr-

um löndum og teygir hin nyrztu annes upp að heimsskauts-

baugi, upp i hið norðlæga Ishaf. Lega landsins á hnettin-

um hefir hin mestu áhrif á loftslag og gróðrarfar og þar

f

með einnig á mannlifið, þjóðina og atvinnuvegi hennar.
Is-land á i þvi sammerkt við flestar úthafseyjar, að það er
eld-brunnið, myndað alt af gosgrjóti. Af þvi landið liggur
svo norðarlega og er myndað af eldgosum, þá er það orðið
»undarlegt sambland af frosti og funa« og á sér i þeim
efn-um engan jafningja á jarðarhnettinum.

Pó nú Island sé umgirt hafi á alla vegu og i fjarlægð
við önnur lönd, þá sjnir nánari athugun að svo liefir eigi
altaf verið. Með því að kanna djúpin, hefir fundist, að
breiður og flatvaxinn hryggur liggur neðansævar frá
Skot-landi um Færeyjar og Island yfir til Grænlands. Sjálft

r

stendur Island á grunnsævispalli, sem er 3—15 mílur á
breidd og smáhallast hann frá landi út að brúninni á
hund-rað faðma dýpi. Utan við pallinn og’hrygginn er hyldýpi
til suðurs og norðurs. Jarðfræðisrannsóknir liafa gjört það
sennilegt, að hér sé allmikill, eldbrunninn landabálkur fyrir
afarlöngum tima síðan siginn í sjó og Island og Færeyjar
séu leifar af landabrú þessari, sem menn hj-ggja hafi náð
yfir Atlantsliafið þvert. íslandi hefir þvi ekki skotið úr sjó
eins og sumir ætla, en virðist þvert á móti vera
eftirstöðv-ar af miklu stærra landi.

Hnattstaða Islands er sú, að nyrzti oddi landsins,
Eifs-tangi á Melrakkasléttu, nær norður til 66" 32’,r. n. br., en

1

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0015.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free