- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
35

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Golfstraumur.

35

brýzt miðjarðarstraumurinn gegnum Yukatan-sundið inn í

Mexikóílóann og fyllir alt það haf, sem verður einsog heitur

ketill, og fær hvergi annarstaðar afrensli en út um hliðið milli

Kuba og Florida, og er þvi eðlilegt að harður straumur sé

í ósnum. Pessi Floridastraumur rennur nú norður milli

/

Florida og Bahamaeyja með miklu afii og hraða. Arlegur
meðalhraði er hér 18 milur á 24 stundum, en hraðinn getur
þó-orðið miklu meiri, 25—30 mílur á sólarhring þegar kaldast
og heitast er (í febrúar og júli); straumurinn rennur einsog
á með viðlika miklum hraða einsog stórár á fiatlendum
Is-lands. Þenna hraða heíir straumurinn norður á 32° n. br..
en eftir það fer hann að fara hægar og breiðast út einkum
austur á við og sameinast þar að nokkru leyti hinu almenna
norðurfalli. Upp að Cap Hatteras rennur straumurinn
stöð-ugt t’ram með ströndum Bandarikjanna. en svo stefnir liann
frá ströndu til norðausturs, og fyrir sunnan Newfoundland
er hraðinn aðeins 6 milur á sólarhring. Vesturrönd
Golf-straumsins er miklu gleggri en hin eystri og fylgir lengi
grunnsævisfieti við strönd Norður-Ameriku, vatn hans er
miklu heitara, blárra, tærara og saltara en liið grænleita
vatn á báða vegu. Niður með Ameríku rennur kaldur straumur
vestan við Golfstrauminn og er á takmörkum straumanna oft
10—15° munur á vatnshitanum á stuttum spöl. Fyrir
norð-an Cap Hatteras fer hinn eiginlegi Floridastraumur að ganga
af sér og hrörna; um leið og straumurinn breikkar skiftist
hann i fjölda af greinum og milli þeirra kemur undirlagið
fram, sem er 3—4° kaldara; kaldari og heitari rákir og
blá-leit og grænleit belti á sjónum sjást mjög viða eftir að
Floridastraumur er farinn að skiftast, en mjög er það
breyti-legt eftir árstimum og árferði. Pað er nú skoðun mannar
að hinn upprunalegi Floridastraumur sé að mestu leyti
dreifður og horfinn þegar kemur suðaustur fyrir
Newfound-landsgrynningar; samt streymir hið heita vatn engu að siður
alstaðar á yfirborði til norðurs og norðausturs og telja menn
það sé mestmegnis vindunum að þakka, sem hér eru
tið-astir úr vestri. Hið geysilega mikla heita straumfall, sem
þekur alt yfirborð Atlantshafsins norður og austur að

3*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0049.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free