- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
65

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Brimhjallar.

65

unnar í logni og hvassviðri, en ílóö og fjara hefir og mikla
þýðingu; þvi meiri sem mismunurinn er á daglegri hæö
sævarfalla og á stórstreymi og smástreymi, því meira starfar
sjórinn ab niðurbroti klettanna, því þá skiftist sifelt á
verknaður aldanna, lofts og
iir-komu- Þegar lagnaðarís með
ströndum fram er landfastur. kemst
brimið eigi að klettunum, en við
strendur. er snúa út að
megin-hafi. er ísinn oftast á rás og
hreyfingu, og þrýstir hann þá oft
á undan sér stórum björgum og
malarhaugum, en ber grjót og
möl, sem á hann dettur, langtburt.
Pegar firðir eru þaktir is, rekur
vindur stundum íshelluna upp á

land og gétur hún þá komið miklu róti á fjörugrjót og
mal-arkamba.

Par sem móberg er i ströndum, er brimið enn
stórvirk-ara og fljótvirkara. I móbergsfjöllum skiftast á lög af ýmsu
tagi. móhellu- og móbergslög, lög af grásteini, blágrýti,
hrauni og hnullungabergi. í*ar sem líparít nær að sjó fram,
einsog sumstaðar á Austfjörðum, eru áhrif sævarins á það
svipuð einsog á móberg, því líparítmyndanir eru lausar í sér
og mjög margbreyttar að samsetningu. Við Lón eru háir
höfðar úr bergtegund þeirri, sem kölluð er gabbró, þar ber
litið á lagaskiftingu, bergin eru mjög hörðogeins ogeinsteypa,
sjórinn sýnist þar lítið afl hafa, en urðirnar i fjörunni eru
þó vottur þess, að alt vinst með tímanum. A Snæfellsnesi
er strandlengjan viða mjög sunduretin, enda eru
bergteg-undir þar mjög margbreytilegar og oftast lausar í sér.
Sunnan og vestan undir Jökli ganga hraun í sjó fram og
hefir brimið brotið rönd þeirra, |>ar eru standbjörg, drangar
i sjónum, vikur með brimsorfnu stórgrýti og margir hellrar
og göt. Af standbjörgum undir Jökli eru Svörtuloft
al-ræmd, því þar hafa orðið miklir skipskaðar; þá eru
Lón-drangar lika frægir, þeir eru hrikalegir og þó fagrii* til

5

12. mynd. Brimhjalli, abcd hið
upprunalega bjai-g, oc
brim-hjallinn, m1 og m sævarliæð
um fióð og fjöru.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0079.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free