- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
67

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Fjörur.

67

sýslum hefir brimið sumstaðar brotiö framan af
móbergs-fjöllum og ummyndað þau á ýmsan hátt; gatið gegnum
Dyrhólaey er alkunnugt og eins Rey ni sdrangar vestur
af Yík i Mýrdal. Þar hefir ströndin viða aukist út á við
og má þvi sjá brimbarið grjót og hellra all-langt frá
flæð-armáli, sem sjórinn þó til skams tima hefir leikið um, en

r

jökulhlaup hafa borið þangað mikið af grjóti. A
Norður-landi ganga móbergsmyndanir i sjó fram á Melrakkasléttu
og Skaga. Fyrir framan Rauðanes í t^istilfirði sunnan við
Yiðarvik eru tveir klettastandar i sjónum og dyr í gegnum
fremsta nefið á nesinu; þá er fuglastapi, sem heitir Karl,
fyrir utan E,auðagnúp. og er hann úr grásteini; einnig er
gat gegnum liina syðri Mánárey. norður af Tjörnesi.
Ketu-björg austan á Skaga eru samsett af móbergi,
hnullunga-bergi og hraunlögum og á sjórinn þvi hægt með að vinna
á þeim; þar eru þvi margir hellisskútar og bjargið springur
oft, svo stórefiis spildur detta niður. Móbergsbjörg eru lika
vestan á Skaga, norður af Hofi, þar eru margir liellar og
drangar og nes með götum í gegn. Vk er Drangey lika
úr móbergi og stapar hjá henni og hefir brimið brotið þar
mikið i seinni tið; þannig mætti telja marga fieiri staði, er
bera vott um stöðuga vinnu sævarins.

Möl, sandur og leir, sem myndast af ágangi sævar á
klettastrendur, berst með straumum frá landi og fram með
landi. Sævarföllin taka við efninu og bera það burt ásamt
framburði ánna, sem er ennþá meiri að vöxtunum, og tiytja
það þangað sem afdrep er. og eykst landið þannig með
tim-anum á sumum stöðum langar leiðir út á við. Svo liagar til
fyrir Mýrum við Faxaíióa norðanverðan. Hvitá og margar
aðrar ár bera leir og sand í fióann, en straumar taka við
og bera árburðinn norður og vestur að Snæfellsnesi og er
þar mikið útfiri, sem kallað er Löngufjörur. Par Jiafa
orðið töluverðar breytingar siðan á landnámstið. sumstaðar
hefir ströndin vaxið út á við, sumstaðar hafa
stórstraums-fióð brotið þurrlendið. I Haffjarðarey var til forna bygð og
kirkja, en á 16. öld fóru að koma þar landbrot mikil af
sævargangi, svo að torsótt var að komast, yfir sundið i eyna.

5*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0081.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free