- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
70

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

70

Suðurströndin.

haldast meö allri suðurströndu landsins vestur undir
Eyja-fjöll og fylgja þannig jöklunum, en þegar þeim sleppir, tekur
við Suðurlands-undirlendið mikla með stórám, er þar renna
til sævar. Sjórinn spvrnir lika á móti útrás þeirra, svo
mynnin á Pjórsá og Olfusá verða lónmynduð og i
Land-eyjum við Markarfljót safnast uppistöðuvatn i »gljárnar«
fyrir ofan malarkambinn. Par sem jökulárnar eru
breyti-legastar og jökulhlaup eru tið, er lónamyndun líka
breyti-legust t. d. á Skeiðarársandi. við Fljótshveríi og á
Mýrdals-sandi. Annars geta þau lón lika stiflast og stundum breyzt,
sem sýnast vera búin að fá fastar skorður, og sumstaðar
verður að moka út ósana, ef lónin eiga að geta fengið
fram-rás. Bæjarós i Lóni fyllist vanalega af sandi á vetrum, en
i júnimánuði er ósinn mokaður upp, svo vatnið fái framrás;
Holtsós undir Eyjafjöllum stiflast stundum á vetrum og
flæðir þá yfir landið i kring. Pessa er þegar getið á 12.
öld og áttu menn þá örðugt með að moka út ósinn og
horfði til vandræða, að vatnsflóð spiltu heyjum manna og
engjum; var þá heitið á Porlák biskup og varð hann vel
við áheitinu, svo ósinn reif sig út af sjálfsdáðum.1)

Jökulárnar hafa myndað sanda fram með ströndu og
aukast þeir stöðugt út á við, en liti maður á landslag
fjall-anna fyrir ofan, er það augljóst, að ströndin mundi verða
alt öðruvisi, ef flæðarmál hækkaði um nokkur hundruð fet,
þá mundi strandlengjan hér einnig verða vogskorin, þó
mundi þar verða litið um firði, en margar vikur,
vogar og smáflóar, enda er hér móberg og þussaberg
í öllum fjöllum. Siðan á landnámstið helir suðurströnd
Is-lands viða breyzt, sandar vaxið út á við, ósar og smáflrðir
horfiö; hafa jökulhlaup og eldgos helzt valdið þessu.
Sand-arnir fram með sjónum á Suðurlandi hafa myndast af
sam-verknaði jökla, jökulfljóta, eldgosa og brims. Jökulárnar
bera eigi aðeins möl og sand niður á láglendið heldur og
mestu kynstur af leðju. sem að mestu leyti er móbergsdust;
það þornar og fýkur fram og tilbaka ásamt eldfjallaösku og

Biskupasögnr I, bls. 119, 338.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0084.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free