Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Lón á söndum.
75
vatnstiáki með eyrum upp úr hér og hvar; þar er mjög
örðugt að komast yíir sakir bleytu og vatnsmegnis, en báta
er ekki hægt að nota vegna grynninga. Ingólfshöfði,
sem stendur beint fyrir þessum vatnaflóa, er hömróttur að
framan (242 fet á liæð) og þar nokkur bjargfuglstekja; um
1700 var höfðinn áfastur við land og á 17. öld var þar
út-ræði og lending austan við höfðann, nú er slíkt. ómögulegt
fvrir vötnum og grynningum; munnmæli segja, að fjörður
hali verið vestan við Ingólfshöfða, Skeiðará mun hafa skiliö
höfðann frá landi snemma á 18. öld. Skeiðarárvötnin hafa
á seinni timum leitað mjög til austurs og gengið á lönd
manna sunnan til í Oræfum; aðalvatnsmegni Skeiðarár
rennur nú út fvrir austan Ingólfshöfða og sameinast áin
þar lóni þvi, niður af Knappavöllum, sem hin eystri vötn
mynda, þar eru tveir ósar, Olduós og Knappavallaós. Fyrir
vestan Ingólfshöfða eru margir ósar gegnum malarkambinn
og má helzt nefna Svínafellsós, Markós og Yeiöiós.
Bæja-árnar i Oræfum veita allar vatni til Skeiðarár eða renna i
vatnsflákann upp af Ingólfshöfða; þessi vatnsfláki er vanalega
4—5 milur á lengd frá vestri til austurs, en miklu mjórri.
Vestar á Skeiðarársandi renna margar kvislar til sævar, sem
stundum eru i sambandi við Skeiðará, stundum ekki; þær
mynda lika uppistöðulón mjög breytileg. Af ósum má þar
nefna Blautaós, Melósa tvo, Rauðabergsós og Nýjaós.
Vest-an við sandinn falla Núpsvötn til sævar og sameinast
Hverfisfljóti og öðrum ám, flæða vötn þessi líka yfir stór
svæði og mynda stórt jökullón. sem hetir útrás gegnum
H v a 1 s i k i.
Skaptá myndar stórt lón fyrir austan Landbrot og falla
i það yms bergvötn frá Austur-Siðu. Kúðafljót slær sér líka
mjög mikið út aö neðan, þó varla megi heita að þar mynd-
r
ist lón. A Mýrdalssandi eru mörg smálón og
uppistöðu-pollar fyrir ofan malarkambinn, enda renna þar margar
jökulkvislar til sævar. í>á eru enn ýms smálón vestur með
ströndu t d. Dyrhólaós, austan við Dyrhólaey,1) og svo
’) Agætt landkort af Mýrdal eftir Landmælingadeild
herforingja-ráftsins. 59 Portland N. A.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>