- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
91

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Vestfirðir.

91

engri skepnu fært, sumstaðar má þó komast mesta
trölla-veg i skriðum hátt i fjallshliðum eða þá um sæbarin björg
á forvöðum i fjöru. Undirlendi er viðast mjög litið fram
með fjörðunum, oft ekkert nema hliðarfóturinn hallandi
niður að sjó, sumstaðar er þó sléttlendisræma fram með
fjöllunum t. d. á Barðaströnd. við Steingrimsfjörð og að
austanverðu við lsafjarðardjúp; við vikur og ósa hefir lika
sumstaðar myndast litilsháttar undirlendi af árburði gilja.
sem þar renna saman, og af sævarsandi.

Fyrir norðan Bjargtanga er röð af smáum vikum yzt
á nesinu sunnan við Patreksfjörð. Yikur þessar eru ailar
liver annari líkar, dældir i fjöllin niður að litlu undirlendi,
sem er mvndað af sævarsandi, einkum gulum skeljasandi,
sem fýkur hér hátt upp i fjöll; ós er lítill eða vaðall inn af
vikunum og rif fyrir framan. Yzt á nesinu, út á móti opnu
hafi. eru Látravik, Breiðavik og Kollsvik, en
sams-konar vikur, eins myndaðar og likar að útliti, haldast inn
með suðurströnd Patreksfjarðar, þar eru Hænuvik,
Or-lygshöfn og fieiri vikur. Patreksfjörður og Tálknafjörður
eru sameinaðir að framan og eru þar um 2 milur á breidd;
hvass og brattur núpur gengur út á milli fjarðanna, sem
heitir Tálkni. Pessir firðir stefna, eins og allir aðrir
aðal-firðir norður að Rit, úr útnorðri til landsuðurs inn i landið.
Patreksfjörður fyrir innan Táikna er nærri 3 milur á
lengd og */2 mila á breidd um miðjuna. far er Vatneyri
og Geirse}7ri norðan megin við fjörðinn. Tálknafjörður
er styttri og mjórri, 2 milur á lengd; þar er Suðureyri og
Sveinseyri. Dýpi þessara fjarða er 16—35 faðmar, en fyrir
útan báða er breiður hryggur neðansævar með 16—20
faðma dýpi. Út af Tálknafirði eru Selárdalshliðar og
Kópa-nes, milli þess og Hafnarness gengur Arnarfjörður langt
inn í land. Arnarfjörður er mikill fjörður, 6 mílna langur
og tveggja milna breiður i mynni. en innar 1—1 Vs mila;
fjörðurinn takmarkast á alla vegu af háum og bröttum
fjöllum og skiftist innarlega i tvent af breiðum skaga, sem
heitir Langanes. Aðalfjörðurinn heldur nærri beint i austur
og er insti angi hans kallaður Borgarfjörður, en I)ynj-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0105.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free