Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
92
Flóar, tirtlir og ues.
andavogur gengur til suöausturs. Sunnan við Langanes
heita einu nafni Suðurfirðir, þeir eru fjórir,
Geirþjófs-fjÖrður nvrðstur og lengstur, en örmjór, þá
Trostans-fjörður, Reykjarfjörður og Fossfjörður, allir stuttir.
Inn i suðurströnd meginfjarðarins ganga nokkrar smávikur
og er sú stærst og merkust, sem verzlunarstaðurinn
Bildu-dalur stendur við. Að norðanverðu eru yzt við
Arnar-fjörð há björg og hrikaleg við Svalvoga og Lokinhamra og
illfært fyrir þau inn að Stapadal.1) Inst er Arnarfjörður
mjög djúpur; fyrir framan Dynjanda hefir fundist 60 faðma
dýpi og milli Auðkúlu og Langaness eru 54 faðmar, svo
grynkar úteftir og úti hjá Lokinhömrum er i
fjarðarmynn-inu 28—34 faðma dýpi og utar jafnvel aðeins 20 faðmar.
Suðurfirðir liafa aldrei verið mældir.2)
Dýrafjörður gengur inn á milli Hafnarness og Skaga
og er þar rúm míla á breidd, en mjókkar mjög inneftir og
skerst langt inn i land, svo hann er nærri 5 milur á lengd;
margar eyrar ganga út i fjörðinn á báða vegu og eru þar
þvi margar ágætar hafnir hver inn af annari. Botn
Dyra-fjarðar hallast jafnt út eftir og dýpið er 15—24 faðmar.
Yið Dýrafjörð er Þingeyri og Haukadalsbót að
sunn-anverðu, en Framnes að norðanverðu. Norðan við
Dýra-fjörð gengur fram fjöllótt nes með háum eggjum og
hömr-um og djúpum dalaskörðum á milli, þar er Nesdalur og
Ingjaldssandur. Onundarfj örður hefir sömu stefnu og
sama lag eins og Dýrafjörður, en er minni; dýpið er svipað
(12—24 f.). Onundarfjörður er 3 mílur á lengd og mila á
breidd i mynni, en mjókkar smátt og smátt inn eftir; þar
er Holtstangi að sunnanverðu, en Flateyri að
norðan-verðu. Súgandafjörður er tæpar tvær mílur á lengd,
mjór og grunnur, varla meir en 6—8 faðmar á dýpt.
Suð-ureyri er tangi úr skeljasandi, sem gengur út i fjörðinn
að sunnanverðu, en Norðureyri á móti. þar eru gryrnn-
’) Andvari XIV. 1888, bls. 54 -56.
-’) Geirþjófsfjörður kvað vera mjög djúpur, mér var sagt 1887 aö
hann væri undan Stöpum móti Sperðlahlíð 80 faðmar, en við
Steina-nes 75 faðmar.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>