- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
94

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

94

Flóar, tirtlir og ues.

um firðinum er 25—32 faðma dypi. Pá kemur Kambsnes
og Seyðisfjörður, sem er minstur þessara fjarða, i
hon-um er svipað dýpi eins og í Alftafirði, þar er skipaleg við *
Eyri. Austan við fjörðinn gengur fram einkennilegt nes,
er þar fremst hátt fjall (liklega um 1600 fet), það heitir
Hestur, en fyrir ofan fjallið er lágt eiði (105 fet) og er þar
örstutt yfir i Hestfjörð. Fjörður þessi er mjög mjór,
þver-brött fjöll á báða vegu og undirlendi ekkert, þar eru sker
fyrir fjarðarmynni og sigling þangað engin. Skötufjarður
er likur Hestfirði og liggja að honum mjög hrjóstrugar
hamrahliðar, þar er Hvitanes að vestan, en Ogursnes að
austan. Skötufjörður er innarlega 80 faðmar á dýpt. en
fremst við Ogursnes eru 27—46 faðmar og allmikið misdýpi;
þar er eiginlega mynni fjarðarins, þvi frá Hvitanesi gengur
hryggur neðansævar út i Vigur. Fram á milli Skötufjarðar
og Mjóafjarðar gengur breitt nes og ganga ýmsar vikur inn
i það að framan, helztar eru Ogursvik, Laugarvik og
fernuvik. Nesin milli víkna þessara eru mjög hrjóstrug
og gróðurlaus, eintómir hamrastallar, klappir og urðir, og
klettanef og ranar fram í sjó. Mjóifjörður er mila á
lengd en mjög mjór, en fjöllin beggja megin lág og grösug;
utarlega i miðjum firði liggur klettahólmi (Hrútey) og mörg
sker i kring, sem hindra siglingu til innri hluta fjarðarins,
fjörðurinn er þó 28 faðma djúpur. Skipalægi er við
Skála-vik. utarlega i firðinum að austanverðu fyrir norðan Hrútey.
Austan við Vatnsnes er Vatnsfjörður, litill fjörður og
grunnur (4 f.) og svo Reykjarfjörður, sem er lengri. en
fullur af boðum og blindskerjum i mynni; austan við hann
gengur fram mjótt nes með mörgum hverum og laugum,
þar var saltsuða- á 18. öld (1773—1786). Þar fyrir austan
gengur inn Isafjörður, hann er áframhald af Djúpinu,
sem mjókkar suður eftir og beygist dálitið til vesturs,
fjöllin eru lág og tilbreytingarlaus beggja megin; út að
Revkjanestá er ísafjörður 2l/2 mila á lengd og þar nærri
1 2 mila á breidd, en sé mynni hans talið við Vatnsnes,
sem sumir gera, er fjörðurinn nærri 4 milna langur. Að
austanverðu er dálitill verzlunarstaður á Arngerðareyri.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0108.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free