- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
98

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

0 Flúar, firðir og nes.

litiö er inn með Ströndum, sést óslitin röð af svörtum núp-

um og hyrnum, en undirlendið er svo að segja ekkert, dálitlir

dalbotnar upp af fjörðum og vikum og sumstaðar standa

bæirnir i skeifumynduðum hvilftum eða skvompum, sem eru

liolaðar niður i bjargbrúnirnar. Vegir eru ákaiiega vondir

og iangt á miili bæja. Látravik og Smiðjuví k eru smá-

básar niður i bjargröndina og berg fyrir framan niður að

sjó, þá koma Barðsvik og Boiungarvik. þær eru stærri

og i þeim undirlendi nokkuð með tjörn og ósi, en skeifu-

myndaður fjallahringur fyrir ofan, bygð er í vikum þessum,

en þær eru mjög afskektar og afarvondur vegur á milli

þeirra Furufjörður skerst inn fyrir sunnan Boiungar-

vikurbjarg, það er litili fjörður beint á móti Hrafnsiirði i

Jökuifjörðum og er stutt heiði á milli (Skorarheiði) og að-

eins tæp miia miiii fjarða. Fá ganga inn tveir smáfirðir,

faralátursfjörður og Reykjafjörður, skriðjöklar ná

niður i botnana á þeim og bera mikinn leir i iirðina, þá er

Sigluvik norðan við Geiróifsnúp. Fyrir sunnan núpinn

er Skjaldabjarnarvik og Bja rnarf jörður, en nokkru

sunnar Drangar, það er hrikaleg fjallsegg, sem gengur út

i sjó og hefir skorist sundur i stórkostiegar hamrastrýtur

mörg hundruð feta háar, drangarnir eru fjórir og iækka

eftir þvi sem utar dregur. Drangarnir sjást langt að norð-

an úr hafi. þegar sigit er til Norðuriands. Fyrir sunnan

_ t

Dranga er Drangavik, þá Eyvindarfjörður og Ofeigs-

’t

fjörður, skerjóttir smáfirðir; úr Ofeigsíirði hverfur
Ingólfs-fjörður inn i landið, hann er mjór en alldjúpur; þaðan er
mjótt og lágt eiði yfir i Norðfjörð, smáfjörð sem gengur
austur úr Trékyllisvik, en fyrir utan eiðið er Krossnes,
fjöllótt nes með Kálfatindi. Sunnan við Trékyllisvik heitir
yzt Reykjanes og Gjögur. Fyrir utan Strandir er
mis-dýpi mikið og fjöldi af skerjum og boðum utarlega og
inn-arlega, eru þeir einu nafni kallaðir Strandabrekar. 1
illviðrum brýtur oft á blindskerjum langt undan landi, en
djúpir og krókóttir áiar ganga inn á milli skerjaklasanna.
Sigling nærri landi er hér hættuleg fyrir aðra en þá sem

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0112.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free