- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
99

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Húnaflói.

99

nákunnugir eru. Yiö Trékyllisvik byrjar Húnaiiói, sem skersfc
langt inn i landið.

Flóar og firðir á Nordurlandi. Strandlengja
Norður-lands er einkennileg að þvi, að þar ganga inn margir stórir
íióar, en firðir eru miklu færri og oftast smáir. flestir þeirra
ganga inn úr flóunum. Eyjafjörður er hinn eini sjálfstæður
stórfjörður. Pegar sjór á fyrri timum, seint á isöldu, náði
hærra upp á landið, voru firðirnir miklu fleiri, sævararmar
kvisluðust þá viða margvislega upp i dalina, en flestir þessir
firðir gengu þó upp úr flóunum. Milli flóanna ganga fram
breið nes og útaf þeim er oftast grunnsævi langt út, en
djúpfirðir eða álar á báða vegu, sýnir þetta að skagarnir i
raun réttri eru miklu stærri neðansævar en upp úr sjó.
Flest nesin eru mjög hálend og fjöllótt, en tvö eru láglend,
Skagi og Melrakkaslétta. Af þvi firðir eru fáir á
Norður-landi, er þar miklu færra um góðar hafnir en á Yestfjörðum,
svo eru hafisar stundum til mikils trafala fyrir skipaferðir.

Húnaflói er vestastur, hann gengur inn á milli Stranda
og Skaga og er 6 milur á breidd og 14 milur á lengd inn
í Hrútafjarðai’botn. Aðalflóinn hallast jafnt og þétt út frá
mynni Hi’útafjarðar, en á svæðinu milli Yatnsness og
Bjarn-arfjarðar er misdvpi mikið og ósléttur botn, siðan er
hall-inn jafnari, þó eru þar vmsir 100 faðma hyljir og djúpáll,
100—160 faðma djúpur, gengur inn mynni Húnaflóa suður
undir 66° n. br. Út af Skaga er fyrst framan af 50—60
faðma dvpi, en siðan grynnra, 30—40 faðmar, 5—6 milur frá
landi. Úr Húnaflóa skerast margir firðir og vikur. Að
vestanverðu er Reykjafjörður nyrztur, hann er nærri 2
milur á lengd, rúmur fjórðungui’ milu á breidd og luktur
2000 feta háum fjöllum. Fjörðurinn er djúpur, 58 faðmar
inni við botn, en grynnri í mynni (40—45 f.j. Par er
verzl-unarstaðurinn Kúvikur. Fyrir sunnan Reykjarfjörð er litill
fjörður, sem heitir Veiðileysa. og þaðan er há og fjöllótt
strönd suður að Steingrimsfirði, þar eru brattir og
hrika-legir höfðar og er Kaldbakshorn þeirra kunnast. það
sést langt að og er einkennilegt, undirlendi er þai’ ekkert
nema fjallsfóturinn. A þessu svæði ganga inn Kaldbaks

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0113.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free