- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
103

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Hornafjörður.

117

þeirra eru Hvanndalir. dalskvompa holuö niður i
björgin, sem ilt er að komast að. Innan við Olafsfjörð er
01 a f s f j a r ð a r m ú 1 i og út af honum í miðju mynni Eyj
a-fjarðar er Hrólfssker.

Eyjafjörður er mestur og merkastur fjörður á
Norð-urlandi, hann er 8 mílur á lengd og 2 milur á breidd um
mynnið, annars er fjörðurinn mjór, aðeins ’/4 —V2 niila innan
til, vikkar, er ntar dregur, eftir þvi sem fleiri dalir ganga
út að firðinum. Há blágrvtisfjöll takmarka Eyjafjörð á
báða vegu og hin langa dalgróf, er fjörðurinn liggur i, er
mjög reglulega mynduð, eins og stór og djúpur árdalur.
og áframhaldið á landi, aðaldalur Eyjafjarðar, nær langt
fram á öræfi og er 7 milur á lengd. Innri hluti Eyjafjarðar
er 10—30 f. á dvpt; eyrar ganga þó út í fjörðinn á báða
bóga og eru sumstaðar þrengsli milli þeirra; þær eru
mynd-aðar af framburði þveráilna, Oddeyri af Glerá, Hörgárgrunn
(eða Toppeyrargrunn) og Laufásgrunn af Hörgá og Fnjóská.
Fjörðurinn hallast jafnt út eftir og hvergi eru þar bollar
eða dældir í botni; i mynni Eyjafjarðar er 80—90 faðma
dj^pi. Fyrir innan Oddeyri er Akureyrarhöfn (Pollurinn) og
er þar gott skijDalægi innan við eyrina; Eyjafjarðará liefir
borið mikinn leir i hinn insta enda fjarðarins, svo þar er
örgrunt og gengur marbakkinn frá miðjum bænum yfir um
fjörðinn. Mörg skipalægi eru i Eyjafirði beggja megin fyrir
innan Hrisey en engar eiginlegar hafnir.

Austan við Eyjafjörð gengur fram hár og fjöllóttur
skagi 2!/2 -31/3 míla á breidd og rúmar 4 mílur á lengd.
hann hefir ekki neitt sérstakt nafn og er sæbrattur mjög á
allar hliðar. Par er að vestanverðu brött lilið niður að
Eyjafirði og heitir þar Látraströnd, en að austanveröu
ganga Víknafjöll, stór og hrikaleg, þverhnypt niður að
Skjálfanda, þar eru Náttfaravíkur. Yzt á nesinu að
vestanverðu er Gjögurfjall og Gjögurtá, og norðan i
skag-ann ganga smávíkur inn i hin bröttu hamrafjöll, þar er
Keflavik vestast, þá Porgeirsfjörður og
Hvalvatns-fjörður. skerjótt er við ströndina, en á í^orgeirsfirði er þó
skipalægi og leita fiskiskip þangað oft; skip geta og legið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0117.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free