- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
102

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

102

Flóar og firðir á Norðurlandi.

Laxárvík, en þá gengur fram hátt fjall. sem heitir
Tinda-stóll, og undirlendið með sjónum austan við hann heitir
Reykjaströnd.

Skagafjörður er mikill fiói, sem skerst meir en 5
milur inn i landið og er 4 milur á breidd að utan; fyrir
botni hans eru sandar, er Héraðsvötnin hafa myndað, þau
falla til sævar beggja megin við Hegranes, það er lágur
klettaháls, er skilur vötnin og vikur þær tvær, sem inn af
flóanum ganga, við vestri vikina er verzlunarstaðurinn
Sauðárkrókur. I Skagafirði er dypið að innanverðu 15
—20 faðmar, en tveir djúpir álar ganga inn beggja megin
við Hegranes (30—50 f.), á hryggnum milli þeirra er
Drangey og l1/^ milu út frá henni gengur skerjaröð. Pað
er einsog álar þessir séu áframhalcl af hinum tveimur rásum
Héraðsvatna, er Hegranesið skilur, en i þvi eru harðir og
isnúnir blágrýtishryggir. Annars er botn Skagafjarðar
jafn-hallandi út eftir. Fram með austurströnd Skagafjarðar er

r

láglenclisræma, en allhá fjöll fyrir ofan. heitir þar
Oslands-hlið og Höfðaströnd. Þar eru hlélitil skipalægi við Hofsós.
Grafarós og Kolkuós. Pórðarhöfði fyrir framan
Höfðavatn skagar út i fjörðinn, en Hrolleifsh öfði er úti
undir fjarðarmynni, þar fer ströndin að beygjast austur undir
bygð þá, sem kölluð er Fljót, þar gengur svif inn i landið
milli Straumness og Almenningsnafar, sem er á sýslumótum;
þar er skipalægi á Haganesvik.

Hinn mikli og fjöllótti skagi, sem gengur út milli
Skaga-fjarðar og Evjafjarðar, hefir ekkert sérstakt nafn. menn
að-greina aðeins dali og bygðalög. Norðan og austan til á skaga
þessum ganga fjöllin þverhnýpt i sjó fram og þar skerast inn
þrir firðir milli múlanna, allir nærri jafnstórir og luktir
há-um fjöllum. Yestastur þeirra er Sigluf jörður, þar er ein
hin bezta höfn á Norðurlandi. en oft þykir þar byljótt.
Fjörðurinn er um milu á lengd, flatbotnaður og 15—16 faðma
djúpur, þó er utar nokkuð grynnra. 8—9 faðmar, hjá
Siglu-nesi. Þá er Héðinsfjörður og Olafsfjörður og er þá
komið inni mynni Eyjafjarðar; botn beggja þessara fjarða
er jafnt afliðandi til hafs og dýpið svipað (5—36 f.). Milli

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0116.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free