- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
107

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Austfiröir.

107

viðri. Milli viknanna ganga fram múlar, hÖfðar og
kletta-nes og er Glettinganes einna alþektast af þvi það skagar
lengst i austur. Vikur þær, sem skerast inn i þenna kjálka.
eru. nyrzt Brúnavík (3 —10 f.), þá Hvalvik, Kjólsvik,
Breiðavik, Herjólfsvik, HúsavikogAlftavik.
Brúna-vik, Breiðavik og Húsavik eru stærstar og upp af þeim
dá-litið fiatlencli, en hitt eru litlar bergskvompur, sem oft er
örðugt að komast í frá sjó og landi. þó eru afskektir bæir
i flestum vikunum. Vikurnar snúa beint móti hafi og er
þar brimasamt og lendingar illar.

Hinir eiginlegu Austfirðir i þrengri merkingu ná
frá Héraðsflóa suður að Hamarsfirði. þeir skerast inn frá
austri i 3000 feta háa hálendisspildu úr blágrýti, sem
takmark-ast að vestan af Fljótsdalshéraði og Jökuldal;
Austfjarða-hálendið er þannig alstaðar aðskiiið frá aðalhálendinu nema
að sunnan, þar gengur það inn undir austurhornið á
Vatna-jökli. Fjallaálmurnar milli fjarðanna eru háar og mjóar, efst
eru oftast raðir af hvössum tindum eða örmjóar eggjar.
B}rljótt þykir viða i fjörðunum; hafnir og skipalægi allgóð
eru þar viða, en eyrar þær. sem eru svo algengar á
Vest-fjörðum. sjást hér óvíða. Nyrzt á þessari strandlengju eru
vikur þær, sem fyrr gátum vér, þá tekur við
Loðmundar-fjörður. það er stuttur fjörður, míla á lengd og tæp hálf
míla • á breidd i mynni. dýptin er 7—28 faðmar. t>ar er
skipalægi að norðanverðu hjá Nesi. Næst kemur
Seyðis-fjörður, hann takmarkast á báða vegu af 3000 feta háum
fjöllum. Fjörður þessi er fyrir margra hluta sakir
þýðing-armestur allra Austfjarða og þar er verzlun mikil,
skipa-ferðir og fiskiveiðar. Seyðisfjörður er 2 mílur á lengd og
tæplega hálf mila á breidd i mynni, þar er skerjalaust og
jafndypi, innarlega er fjörðurinn 20—40 faðma djúpur og i
miðjum fjarðarbotni er aflöng dæld með 40—47 faðma dýpi;
um mynnið er fjörðurinn nokkuð grynnri, 30—38 faðmar
milli Borgarness og Skálaness, en út af Seyðisfirði er langur
t’jarðaráll neðansævar. Kaupstaðurinn samnefndur er inni i
bot.n: og heitir aðalhluti hansAldan, en Búðarevri og
Vest-dalsevri eru sérstakir bæjarhlutar nokkru utar. Nesið sunnan

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0121.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free