- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
122

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

122

Ey.jar kringum Island.

Súlnasker. Súlnasker er mjög einkennilegt, 255 feta hátt
og þverhnyptir hamrar umhverfis; móbergseyja þessi stendur
á fjórum afarmiklum stoðum, brimið hefir brotið hvelfingar
i kross gegnum skerið, og má róa gegnum þær i ládeyðu.
Mest er hvelfingin, sem gengur undir skerið frá vestri til
austurs, þar eru 80—40 álnir undir loft, þar sem hæst er;
utan á veggjum hvelfinganna eru margar hyllur og pallar
alskipaðar bjargfugli. Uppi á skerinu er einnig mikil
fugla-mergð, einkum af súlu, fuglaveiði er þar mikil og arðsöm, en
ferðir iskerið eru mjögörðugar og hættulegar. E-úma hálfamílu
frá Súlnaskeri til vesturs, hallandi suður, er
Geirfugla-sker, 185 feta hár klettahólmi með dröngum og skerjum i
kring. Allar þær eyjar, sem hafa verið taldar hér til
Vest-mannaeyja, eru úr móbergi og eldbrunnar til forna, enda
liggja þær i röð frá útsuðri til landnorðurs, einsog
eidfjalla-raðir um miðbik Islands. Langt vestur af Heimaey eru
einstakir drangar og sker i djúpum sjó. Þar er E i n i
-drangur (eða Einarsdrangur) (102’) rúmar tvær milur frá
Heimaey^ og Pridrangar (127’) úr milu þaðan til
norð-austurs, i nánd við dranga þessa hina siðari eru boðar og
grunn.

Frá Vestmannaeyjum að Reykjanestá eru hvergi eyjar
fram með ströndu Islands og engin sker eða boðar nema
fast uppi við land; þó ströndin sé láglend, er þó æði
að-djúpt, 30 faðma dýpi skamt fyrir utan landsteina. Milli
Pjórsár og Ölfusár hefir brimið brotið rönd hins gamla
hrauns, sem runnið hefir niður Flóa, og hefir skergarður
myndast fram með ströndinni; milli skerjanna eru
smá-hafnir við Eyrarbakka og Stokkseyri, en tryggja verður
skipin með landfestum.

r

Ut af Reykjanesskaga gengur til suðvesturs afarlangur
tangi neðansævar. sem fyrr hefir verið getið. A þessum
hrygg er röð af smáeyjum og skerjum, sem gengur 10—11
milur til hafs; sker þessi eru einu nafni kölluð Eldeyjar
eða Fuglasker. Skamt fyrir utan Reykjanes, l2/3 milu
frá landi, er Eldey, sem Danir kalla »Melsækken«, eftir
lögun eyjarinnar og lit. Eldej* er 200—250 fet á hæð og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0136.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free