Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
124
Ey.jar kringum Island.
eldsumbrotin þar á 13. öld, miinum vér geta þeirra siðar i
eldfjallakaflanum. Skerjaröðin er lika fræg fyrir
geirfugl-inn, sem þar var síðast veiddur 1844, og hefir ekki sézt
siðan.
Fram með Reykjanesskaga utanverðum eru mörg sker
fyrir Suðurnesjum og Garði að vestan. en engar eyjar sem
teljandi eru; norðan við skagann er lika eyjalaust i
Faxa-flóa þangað til kemur að Innnesjum, þar er röð af evjum
norður og austur af Seltjarnarnesi. Langmerkust þeirra
eyja er Viðey út af Grafarvogum, hálfa milu norður og
austur af Reykjavík og skilur mjótt sund hana frá landi.
Viðey er aflöng, fjórðungur milu á lengd og rúmir 300
faðmar á breidd,1) hún skiftist i vesturhluta og austurhluta,
sem er stærri, og er eiði á milli. Eyjan er liólótt með
klappaholtum og þó grasgefln. Viðey er talin mikil jörð.
þar eru landkostir góðir, heyskapur nægur, æðarvarp og
eggjatekja. I Viðey var klaustur 1226—1550 og
prent-smiðja 1819—1844, þar bjuggu margir höfðingjar og
merk-ismenn fyrr og siðar. Vestur af Viðey, beint fyrir utan
Reykjavikurhöfn. er Engey, hún er flöt og grasivaxin og
mjókkar til suðurs, þar er æðarvarp og útræði. Pá er
Effersey (eða Orfirisey) vestan megin við innsiglinguna
til Reykjavikur, hún er áföst við land með granda, sem
þurr er um fjöru. A 17. og 18. öld voru verzlunarhús á
Effersey, unz þau voru flutt til Reykjavikur 1780,
kaupstað-urinn hét þá Hólmurinn eða Hólmskaupstaður. Par norður
af er Akurey og er þar nokkur fuglatekja. Austur af
Viðey er Geldinganes, milli Gufuness og Leiruvogs, það
er lanclfast með fjöru, þá er Perney, bygð ey þar fyrir
r
norðan, og Lundev vestur af henni. I mynni Hvalfjarðar
er Anclriðsey, norður af Kjalarnesi, og i Leirárvogum er
Leirárey, þar er æðarvarp.
Fram með M}?rasýslu og út með Snæfellsnesi að sunnan
er fjöldi af lágum eyjum og skerjum. I mynni
Borgar-fjarðar eru Borgareyjar, þá er Þormóðssker út af
’) Landt’ræöissaga III, bls. 176, nmgr.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>