Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Mýraeyjar.
125
Alftanesi 2/3 úr milu undan landi. Svo er fjöldi eyja og
hólma bæði fyrir Alftaneshreppi og Hraunhreppi, og eru
margar þeirra landfastar um fjöru, þar er Knarrarnes,
Hjörtsey (Hjörsey), allstór ey vestan við Alftárósa, og
Skutulsey þaðan i norður. allar bygðar, grasgefnar og
góðar jarðir. Sumar eyjar eru nú i eyði, sem áður liafa
verið bygðar, og mjög hefir ströndin viða breyzt af
sævar-gangi. Ennfremur má nefna Kjaransey i Hitárósi og
Hvaleyjar út af Okrum, þær eru rúma hálfa mílu frá
landi. I Kaldárósi eru Jörfaeyjar og í Hausthúsavik i
Miklaholtshreppi er Haffjarðarey, þar var til forna bær
og kirkja, lá þangað allur Eyjahreppur, og i sókninni vo.ru
5 bænhús, en á 16. öld fóru að koma þar landbrot mikil af
sjávargangi, svo að torsótt var að komast yfir sundið i eyna
og var kirkjan tekin af 1563, en sókninni skift milli annara
r
kirkna.1) Ut með Staðarsveit eru sker á við og dreif. en
engar eyjar merkilegar.
r
Hvergi á Islandi er annar eins sægur af eyjum einsog
á Breiðafirði og skipta þær mörgum liundruðum, það eru
alt klettaeyjar, en fæstar eru þó mjög háar úr sjó, þó oft
séu á þeim holt og klettaborgir, hæstir eru Dímonarklakkar
hjá Hrappsey, þeir eru 185 fet á hæð. Margar af
Breiða-fjarðareyjum eru bygðar, en þó langt um fieiri óbygðar, á
þeim eru mikil hlunnindi viða i æðarvarpi, eggveri og
fuglatekju, og viða eru slægjur góðar og fjárbeit, sumstaðar
útræði (Höskuldsey, Bjarneyjar, Oddbjarnarsker). Eyjar
þessar eru dreifðar um allan innri hluta Breiðafjarðar og
heyra undir þrjár sýslur, Snæfellsness-, Dala- og
Barða-strandarsýslur. Tveir stærstu eyjahóparnir eru við mynni
Hvammsfjarðar, þær eru kallaðar Suðureyjar, og fyrir
framan Barðaströnd og fyrir utan Gilsfjörð, þær kalla menn
Vestureyjar, þó þær mætti fremur kalla Norðureyjar.
Vestasta ey við Snæfellsnes að norðan er
Melrakka-ev á Grundarfirði, sem sjómenn kalla Prestsey, af þvi hún
’) Dipl. Island. I, bls. 421-422; 111, 82– 83, 305. Ísafold XI.
bls. 81.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>