Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
142 Yfirborðsmyndanir.
141
betur á ýmsum stöðum, en þegar litið er á alla heildina. sést
jafnvægi og samræmi i hvivetna.
Island er alt eldbrunnið, hlaðið upp af gosgrjóti, sem
hin ytri áhrif síðar á margan hátt hafa ummyndað. Hið
ytra útlit fjalla er mismunandi eftir efnum, einsog fyrr
gát-um vér, og yfirborð flatlendis, bæði á hálendum og
lág-lendum, er lika mismunandi eftir efni og áhrifum eldgosa,
lofts og lagar. Efst i jarðvegi er sumstaðar grassvörður,
en hann tekur tiltölulega yfir litið svæði af öllu flatarmáli
Islands, annars eru á yfirborði holt og urðir, klappir og
klettar, melar og mýrar, sandar og móhella, hraun og
apal-grjót, jöklar og fannir. Grasgefnust eru eðlilega láglendin
og dalirnir, en gróðurinn minkar eftir þvi sem ofar dregur
og hálendið er að mestu leyti öræfi ein og eyðimerkur.
Stór svæði af hálendi Islands eru þakin jöklum og
fönnum, sem aldrei þiðna á sumrum; jöklar taka yfir 240
ferh. milur að minsta kosti. en ef sumar-fannir væru taldar
með, yrði snjóbreiðan öll eflaust 3—400 ferh. milur.
Jökl-um og snjó mun siðar itarlega lýst. Hraun taka yfir 200
ferh. milur bæði á hálendi og láglendi, á öræfum og i
bygðum. Pannig er meira en fjórði hluti Islands þakinn
snjó og hraunum. Hraunin eru sum flatvaxin helluhraun
með ótal sprungum, en sum eru apalhraun þakin
hraunurð-um og ill yfirferðar. Flest hraun á hálendinu eru
gróður-laus þó þau séu gömul, en forn hraun i bygðum eru oft
grasivaxin, á láglendi má þvi stundum hlutfallslega ráða í
aldur þeirra eftir gróðri. Gömul hraun, sem runnið hafa af
hálendi niður i bygð, eru alla jafnan gróðurlaus liið efra,
en þakin jarðvegi eða skógivaxin i bygð, sumstaðar liggja
jafnvel þykkar mýramyndanir ofan á hraununum einsog
t. d. i Flóa, eða vallendi einsog á Skeiðum. sumstaðar eru
liraun þakin roksandi eða móhellumyndunum. Hraunum
mun siðar itarlega lýst.
Hart berg kemur viða fram á yfirborði á stórum s\
æð-um, þó þar séu eiginlega engin fjöll eða fell. heldur aðeins
holt og ásar, klappir og klettar. Utlitið er mismunandi eftir
efni og myndun, og er liér eigi hægt að lýsa hinn einstaka.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>