Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
142
Yfirborðsmyndanir. 142
Klappaholt eru flest úr blágrýti eða grágryti, þó stundum
úr móbergi, en þá eru oftast hinar harðari bergtegundir
ofan á og hlifa hinu gljúpa móbergi. Holtin eru oft hærri
i annan enda og brött, en afliðandi hinumegin, halli þeirra
orsakast alloft af halla blágrýtislaganna, sem i þeim er, en
lögunin hefir lika breyzt af ágangi jökla á isöldu, það sést
oft á ásunum, að þeir eru isnúnir og sorfnir, stundum sjást
glöggar isrákir, einkum þar sem leir eða jarðvegur hefir
hlift steinunum, en oftast eru rákirnar afmáðar af áhrifum
lofts og lagar; á rákunum sést, að bretta holtsins snýr
oft-ast undan íshreyfingunni, stundum hefir lausagrjót sópast
niður fyrir og liggur i hrúgum eða öldum i hlé við ásinn.
I lægðunum milli ásanna er lausagrjót, isaldarruðningur,
mýrar og annar jarðvegur, stundum vötn, stundum hraun.
Sjóarklettar eru oft einkenuilega sunduretnir á yfirborði af
áhrifum sævar, einkum þó grágrýtið.
A stórum svæðum eru urðir, óreglulega upptildrað
stór-grýti, stundum i hrúgum, stundum i breiðum yfir miklar
viðáttur einkum á hálendinu, og eru þær urðir viða
kall-aðar »Grjótin«. Undir bröttum fjallshlíðum liggja miklar
urðarhrúgur, stórgrýti losnar smátt og smátt úr klettum af
áhrifum vatns og frosta, eða kemur i leysingum með
skrið-um og jarðföllum, er undan þvi losnar, eða þá með
snjó-flóðum eða hrapar niður skaíia. Björgin, sem detta, sprengja
aðra steina, rista sundur jarðveginn, er þau skoppa niður
hliðarnar og gjöra djúpar skorur og holur, þar sem þau
koma niður; mörg björg mjakast af þunga sinum með hægð
lengra og lengra niður ár frá ári, þó þau virðist kyrr.
Margar urðir undir fjallshliðum hafa myndast við jarðskjálfta.
ennfremur eru sumstaðar stórgerðar jökulurðir, sem borist hafa
á skriðjöklum. Hinar miklu urðabreiður á hálendinu hafa
fiestar myndast af hitabreytingum; uppi til fjalla er meiri
mismunur hita og kulda en nær sjó; sólin hitar steinana
mjög mikið meðan hún skin, vatn kemst inn i hverja
sprungu og frýs á hverri nóttu; við þetta springur
grá-grýtið og blágrýtið i óreglulega hyrnd stykki, eða i flögur
eftir klofnunareðli steinsins. Sumstaðar eru líka á hálend-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>