Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Sandar.
143
inu allstórar breiður af gömlum jökulurðum með núnum
og hálfnúnum steinum.
Hið smærra lausagrjót. möl, aurar, sanclur og leir taka
yfir mikil svæði um land alt, þó mest á láglendi. I
mó-bergshéruðum hefir afarmikið lausagrjót myndast við
sund-urliðun móbergsins, það linast og leysist af áhrifum vatns og
lofts og af sandroki, og hraunmolar smáir og stórir, sem eru
i móberginu, iosna. af þvi vindar bera tengiefnið burtu.
Pað er varia hægt að skera úr þvi með almennum orðum,
hvernig möi og sandur er tii orðinn, þvi hver blettur hefir
sina sögu. Smágrjótið eða mölin er oft jöklaruðningur,
sem á isöldu hefir breiðst út um alt land og margvíslega
ummyndast af vatnsrensli; mikil möl er beinlinis árburður
nýr og forn, sumt hefir sjórinn mulið. Viða eru
leir-lög fram með ám og undir jarðvegi og hraunum, sumstaðar
eru leirlögin þykk (50—100 fet) og mynda háa bakka, og
oftast e.r sandur og móhella ofan á. Leirinn mun mestallur
myndaður á isöldu, árnar hafa borið hann út i firði og
fióa, þegar sævarborð stóð hærra en nú. I melum er viða
sambland af rnöl og leir, einsog enn sést við skriðjökla, þar
sem margir jökullækir renna; þegar snjóa leysir á vorin.
geta melar orðið að kviksyndi, þangað til úr þeim rennur
og um þornar. Af frosti springur yfirborð mela i eintóma
tigla eða óreglulega möskva, sem sjást iangt að, af þvi
vindurinn feykir steinum niður i sprungurnar, en jurtir fá
þar skjól og vaxa þar betur en á hinum leirugu
millibils-flötum, þar sem bæði saggi og vindur er þeim tii ónota.
Ofan á lausagrjótinu og leirnum myndast smátt og smátt
jarðvegur, þar sem lifsskiiyrðin eru hentug fyrir jurtirnar,
hinar eidri kvnslóðir mvnda grundvöll hinna siðari.
%J «/ CD
Sandar taka yfir mikil svæði á Islandi, og munum vér
siðar geta hinna einstöku sandfláka. Yfirborð þeirra og
eðli er þó mismunandi eftir myndun þeirra og uppruna.
Hinir stóru sandar fram með suðurströndu Islands eru
myndaðir af skriðjöklum og jökulám, sem hafa borið möl
og grjót niður á láglendi. Jökulkvislirnar eru mjög
breyti-legar, þær flytja með sér urmul af grjóti, möl, sandi
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>