Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Skriður.
155
yfir fjörðinn 1882 og færði þar sexæring upp á annan bát;
viðar við þann fjörð liafa snjóskriður hlaupið yfir fjörðinn.1)
1884 hljóp skriða á bæinn Hliðartún i Sökkólfsclal og urðu
7 menn undir, og voru tveir kvennmenn grafnir út með lifi.
en annar dó síðar af meiðslunum.2) Hinn 2. september 1886
var voðarigning um Suðurland og Yesturland með miklum
vatnavöxtum, þá hlupu viða skriður og varð einna mestur
skaði af þeim á Kjalarnesi. Þar skemdust 9 jarðir mjög af
skriðuhlaupum, stærst var sú skriðan, er kom niður
Gljúfur-dal fyrir ofan Esjuberg, hún hljóp austur úr ánni og eyddi
alveg jörðina Grund, fólkið gat með naumindum bjargað
sér upp á húsin i þvi skriðan reið að, túnið varð alt þakið
stórgrýtisurð. Skemclir urðu þá einnig á jörðum i Kjós.:$)
Mjög minnisstæð eru hin miklu slys, sem orðið hafa á
Seyðisfirði. Hinn 13. janúar 1882 tók snjóflóð nokkur hús
utan til á Oldunni og týndust tvö börn, en skaðinn var
metinn 12,250 kr.f) A sama stað kom niður háskalegt
snjó-flóð 18. febrúar 1885 kl. 8 um morguninn, þá fórust 24 menn.
en margir meicldust, 14 ibúðarhús eydclust og mörg útihús
’ og var skaðinn metinn 55,600 kr. Mörg önnur snjóflóð
urðu þá á Seyðisfirði, Loðmundarfirði og Mjóafirði. Hinn
31. janúar 1894 komu enn mörg snjóflóð á Seyðisfirði og
viðar, eitt þeirra fór sömu leið niður á Olduna sem hin
fyrri.5) Arið 1892 féll skriða á Búðareyri 3. júli og tók
hús,t!) og aftur 1897 féllu margar skriður 15. ágúst og gerðu
ýms spell, bæði á Búðareyri og annarstaðar við
Seyðis-fjörð, einnig i Loðmunclarfirði og Mjóafirði;7) hinn 22. febr.
1904 gerðu snjófióð skaða á Seyðisfirði og Mjóafirði og viðar
’) Andvari XIV, 1888, bls. 50.
2) Pjóðólfur 36. árg., bls. 184.
:i) Suðri IV, bls. 95—96. fjóðólfur 38. árg., bls. 163.
A) Norðanfari XXI, bls. 24. Norðlingur VI, bls. 83.
Austri liinn eldri II, bls. 12, 14—15, 20. Norðanfari XXIV, bls.
44. 52, 78. Pjóðólfur 1894, bls. 51. Ólafur Olavius nefnir þegar á 18.
öld liættuleg snjóflóð við Seyðisfjörð. Oekonom. Reise 1780. bls. 454.
K) ísafold 1892, bls. 242. "
7) Pjóðólfur 1897, bls. 166.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>