- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
167

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Öræíi og ób\’gðir. 167

Öræfi og óbygdir noröan jökla. Hálendi Islands er
langhæst að suðaustan, 5—6000 feta hátt á allmiklu svæði
en þar er það alt þakið afarmiklum fannflákum, sem taka
yfir 150 ferh. milur og heita einu nafni Vatnajökull eða
Klofajökull, það er hinn langstærsti jökull í Norðurálfu
og mun honum síðar verða ítarlega lýst i jökla-þættinum.
Eigi vita menn hve jökullagið er þykt, sem á fjöllunum
hvílir, en eflaust er það víða mörg hundruð fet; fjalllendið
hverfur þvinær alt undir snjónum, aðeins örfáir tindar standa
upp úr jöklinum, og fell og höfðar ganga út undan röndum
hans á alla vegu; rnenn vita þvínær ekkert urn liina
eig-inlegu lögun fjallanna á þessu svæði, en verða aðeins að
geta sér til um aðaldrætti landslagsins eftir bungum og
lægðum jökulsins.

Undan austurhorni Yatnajökuls gengur mikill
fjalla-bálkur til norðurs og austurs, mjög sundurskorinn af djúpurn
dölum og gljúfrum; þar hefst lrið mikla Austfjarðahálendi,
sem skilst frá aðalhálendinu af Fljótsdal og Jökuldal.
Lands-lag við austurhorn Yatnajökuls er mjög stórhrikalegt,
fjalls-tindarnir hvassir og háir, gljúfrin ægileg og klungrin
ótelj-andi, en skriðjöklar og hjarnskaflar r lautunum og hinum
margkvísluðu gljúfradölum innanurn skörðóttar fjallseggjar,
tinda, karnba og höfða. Fjöll þessi, sem líklega eru 4—
5000 feta há, hafa enn ekki verið mæld, þau eru að rniklu
leyti úr liparíti, en blágrýti innan um.
Sauðhamars-tindur er mjög hár og auðkennilegur tindur í þessum
fjöllum; niðuraf honum ganga háar eggjar og á þeim
Múla-tindar. Skyndidalsá og Jökulsá í Lóni renna í djúpum
gljúfradölum, er hafa skorið sundur hálendið niðuraf þessum
hinum háu jökulhnúkum. Sunnan við Skyndidal er fjallgarður,
er gengur niður með Hoffellsdal í Hornafirði, og eru á lronum
háar eggjar snævi þaktar og þar er kistumyndað fjall er
heitir Goðaborg. Milli Skyndidals og Jökulsár i Lóni er
Kjarrdalsheiði, fjallshryggur 2200 feta hár, er ris frá
jafnsléttu, og gljúfur á báða vegu, Jökulsárgljúfrið að austan,
en Hafragil að vestan; Hafragil er gljúfradalur, sem gengur
allar götur upp undir Sauðhamarstind. T Jökulsá að austan-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0181.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free