- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
168

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

164

Aðalhálendi íslands. 168

verðu fellur Víðidalsá og er fjallsmúli brattur milli þeirra,
sem heitir Kollumúli (2300’) og gljúfur hrikaleg á báða
vegu. Austan við Viðidal er Hofsjökull, þá Hofsdalur, svo
Geithellnadalur og Prándarjökull. Dalirnir skerast djúpt
inn i hálendisröndina og milli þeirra eru víða raðir af tindum
og örmjóum eggjum. Upp af öllum dalbotnunum er hálendið
alt þakið blágrýtis-urðum, sem menn kalla Hraunin, og
liggja þau 2—3000 fet yfir sjó; þar efra eru eintóm
öldu-mynduð holt og sker, lágar bungur og hálsadrög; þetta
urðaland tekur yfir geysimikið svæði, það nær frá
Vatna-jökli niður undir Skriðdal og Hjerað, um hálendisbungurnar
allar milli dalbotnanna og Jökulsár í Fljótsdal. Upp úr
lausagrjótinu standa víða klappaholt, en sumstaðar eru
holurðir mjög illar yfirferðar eða jafnvel ófærar fyrir hesta;
þar má heita gróðurlaust, þó einstaka planta sjáist á stangli.
Urðarbreiðurnar, hin stórgrýttu heiðalönd milli Kelduár og
Jökulsár, eru kölluð Múlaheiði, og er þar liið sama
lands-lag fram á múla og dalabrúnir. Blágrýti virðist alstaðar
vera aðalefni i fjöllum þeim, sem liggja undir lausagrjóti og
urðum á þessum heiðum.

Við uppsprettur Jökulsár i Lóni ganga á nokkru svæði
móbergsfjöll útundan jöklinum og þar er Geldingafell
einn hæsti hnúkurinn. Nokkru vestar gengur
Eyjabakka-jökull niður á hálendið, þar hefir Jökulsá i Fljótsdal upptök
sin og rennur i ótal kvislum um marflatt sléttlendi, árnar
koma upp i tveim aðalkerfum beggja megin við litið fell í
jökulröndinni (Eyjafell) og kvíslast um tveggja milna svæði
áður þær sameinast. Graslendi mjög viðlend eru á eyrunum
milli kvíslanna, er heita Eyjabakkar, en bleytur eru þar
ákaflega miklar svo óviða er fært nokkurri gangandi skepnu.
Undirlendi er hér alt þakið jökulleðju og jökulsandi. Vestan
við Eyjabakka eru móbergsfjallgarðar frá suðri til norðurs
með sundurlausum hryggjum og tindum og á þeim miðjum
mænir Snæfell til himins. Snæfell er annað hið
mikil-fenglegasta fja.ll á öræfum Islands norðan jökla, en hitt er
Herðubreið. Snæfell er eitt af hæstu fjöllum á Islandi og
er talið 5807 fet á hæð, það er líklega gamalt eldfjall og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0182.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free