- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
195

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Obygðir og afréttir.

195

í lautnnum; fjöllin eru að miklu leyti lir lípariti, en víða

r

þykk móbergslög ofan á. Ur Kerlingarfjöllum renna ár
bæði suður og norður, þar eru margkvislaðir dalir og gljúfur
og margir stórir leir- og brennisteinshverir og önnur merki
um jarðhita. Norður af Kerlingarfjöllum er Blágnýpa i
rönd Hofsjökuls, en ýms smáfell vestur af þeim, og er
Mos-fell einna helzt þeirra. Austur af Kerlingarfjöllum kvað
heita Illahraun, það er enn ókannað. Miklu austar er
við rönd Hofsjökuls áfangablettur, sem heitir Nauthagi,
þar er laug, mýrgresi töluvert ’og hvannir, og svo kemur
Arnarfell hið mikla við suðausturrönd jökulsins, þar
ikring renna margar jökulkvislar i Pjórsá; undir Arnarfelli
eru hagar og áfangastaður.

Svæðið milli Langjökuls og Yatnajökuls fyrir sunnan
Hofsjökul er hin eina samanhangandi flatneskja á hálendi
Islands sunnan jökla; landinu hallar hér alstaðar frá jöklum
niður undir Suðurlandsundirlendi og niður að ánum.
mis-hæðir eru fáar. Kjalvegur og Sprengisandur samtengja
þetta flatlendi við öræfin norðan jökla, en annars
takmark-ast það af jöklum og móbergsfjöllum; hálendið er á þessu
svæði töluvert lægra en öræfin norðan jökla (14—1800 fet
yfir sjó). Mestur hluti þessarar hálendisspildu er afréttarland
með allmiklum gróðrarköflum hér og hvar, en grasleysurnar
aukast eftir þvi sem ofar dregur og austar, hraunbreiðurnar
og roksandarnir milli Köldukvislar og Tungnár bæta ekki
búskapinn. Lausagrjót og jökulruðningur þekur svæðið að
miklu leyti, en annars hafa þessar afréttir verið lítt kannaðar
af fræðimönnum.

Austanverðu á Sprengisandi eru dálitlir hagar í
Nýja-dal við Tungnafellsjökul og i Tómásarhaga, en annars
eru eintómar grasleysur kringum Tungnafellsjökul. Milli
Þjórsár og Köldukvislar er Holtamannaafréttur, hann er
hrjóstrugur og óviða hestahagar, helztu áningarstaðir eru
Hesttorfa sunnan i Búðarhálsi, Klifshagavellir nokkru
austar við Köldukvísl og Illugaver vestan við Sauðafell,
norðar tekur við Hágönguhraun og
Köldukvislar-botnar, leirhvammar og flákar sunnan til i mynninu á

13*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0209.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free