- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
242

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

242

Norðurlancl.

r

Kræklingahlíð. A hálendistungunni milli Eyjafjarðar og
Öxnadals eru jökulmyndanir allmiklar, milli efstu eggja og
hnúka er jökull, sem heitir Vindheimajökull, upp úr
hjarnfönnum jökuls þessa eru hæstu tindarnir Kista(4672’i
og Strýta (4612’). Austan við þessar eggjar gengur
Glerárdalur inn i fjöllin og austan við hann er annar hár
fjallarani þó nokkuð lægri, þar eru Súlur (3618’) og
Kerling (4300’). Upp frá botni Eyjafjarðar gengur hin
breiða og fagra Ey j af j arðarby gð, þar hefst dalur mikill,
sem gengur nærri beint í suður og er um 7 milur á lengd.
Ain rennur eftir fögrum engjasiéttum, sem beggja megin
takmarkast af háum og tignarlegum fjöllum. Margir
þver-dalir ganga út úr aðaldalnum, að vestanverðu
Skjálgs-dalur, Djúpidalur og Villingaclalur, en að austan
Mjaðmárdalur og Sölvadalur. Pegar dregur upp eftir
Eyjafjarðardalnum verður hann óslóttari á köfium, þar eru
víða hólar af isaidarruðningi einkum fyrir opum afdala; hjá
Hólum er þvergirðing af jökulöldum yfir aðaidalinn, þar er
Hólavatn bak við, en einna stórgerðastir eru Leyningshólar
fyrir mynni Viilingadals.

r

Ut með Eyjafirði að austanverðu er óslitin fjallshlið út
að mynni Fnjóskadals, er myndar mjótt skarð þvers i
gegn-um fjallgarðinn, þessi fjallshryggur heitir Vaðlaheiði
(Járnhryggur 2260’), þar er vegur úr fjarðarbotninum í
Fnjóskadal yfir Bildsárskarð (2043’), en þjóðvegurinn yfir
Vaðlaheiði liggur nokkuð norðar. Neðan í hinum afiiðandi
vesturhalla Vaðlaheiðar niður að Eyjafirði er
samanhang-andi bygð út að Fnjóská og heitir Svalbarðsströnd.
Fyrir utan Fnjóskármynni er Höfðahverfi, þar er dálitið
sléttlendi með tjörnum fyrir ofan höfða, sem skagar út í
fjörðinn. Fyrir utan Höfðahverfi er Látraströnd, þar eru
há fjöll fyrir ofan og sæbrött ströndin, eru víða háir hamrar
og klif fram með sjónum, gii og gljúfur skerast langt upp i
hliðar og götur liggja hátt, undirlendi er ekkert og hliðar
brattar en þó grösugar; strjál bæjaröð er fram með allri
ströndinni. Upp af Látraströnd er hár fjallaklasi og á
hon-um efst allmiklar hjarnfannir, þar er Kaldbakur (3699’)

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0256.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free