- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
246

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

246

Norðurlancl.

A norðvesturhorninu er Rauðinúpur (242’) en þaðan
austur er ströndin nesjótt og skerjótt með vikum, lónum og
smávötnum; á Austur-Sléttu eru viða urðir og mýrasimd
og á austasta jaðrinum töluvert af holtum alt suður að
Ormalóni. Par verður ströndin aftur fjöllótt og beygist
beint austur að Melrakkanesi. A þessu svæði gengur breitt
hálsaland fram að sjó með mörgum hryggjum, núpum og
tindum og helst það óslitið inn með t’istilfirði, suður að
Búrfellsheiði. A þessum hálsum er Ottarshnúkur (1455’)
um miðjuna vestan til, en Svalbarðshnúkur (2241’) syðst.
Aðalvegur yfir skagann milli bygða heitir
Axarfjarðar-heiði, og norður af henni, milli fjallgarða þeirra, sem fyr
voru nefndir. er um miðbik skagans einlæg slétta, sem
sýnist lárétt einsog haf þó örlitlar öldur sé á henni hér og
livar; sléttlendi þetta er meir en þingmannaleið á lengd og
2—3 mílur á breidd.

Fyrir botni Pistilfjarðar er allmikið öldumyndað
undirlendi með hægum aðlíðanda upp að Búrfellsheiði; þar
renna margar ár til sævar jafnhliða, en milli þeirra eru
breiðar holtabungur og heiðalöndin upp af bygðinni eru
mjög grösug. Alandsás er einna hæstur af ásunum milli
ánna. Fyrir austan Hafralónsá takmarkast bygðin af
saman-hangandi hlið úteftir, það er röndin á Brekknaheiði og
nær hún út að Langanesfjöllum. I kverkinni milli
Lóna-fjarðar og Finnafjarðar hefst Langanes og takmarkast þar
af fjallvegi þeim, sem heit.ir Gunnólfsvikurheiði
(644’)-Sunnan og austan á Langanesi eru há móbergsfjöll og er
Gunnólf svikurf j all (2295’) þeirra hæst, og eru mörg
önnur fjöll lægri og hálsar í kringum það. Ut undan
fjöll-um þessum gengur hálsahjalli allbreiður til norðurs og
vesturs, en neðar er lægri hjalli, sem gengur i sjó fram
milli Syðra-Lóns og Sauðaness. Fyrir utan fjalllendi þetta
er lægð þvers yfir nesið hjá Eiðisvik, sem heitir
Eiðis-skarð (159’), og skerst fjallendið þar nærri sundur, þá kemur
Heiðarfjall (596’) og svo Heiðarskarð (303’), siðan er
Langanes þar fyrir utan samanhangandi hálendishella með
grágrýtisholtum og þverhnýpt björg á alla vegu (100—250

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0260.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free