- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
256

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

256

Suðurjaðai- hálendisins

beint norður. Fyrir neðan þessi fjöll er grasivaxið sléttlendi
fram með Hornafirði og Hornafjarðarfljótnm, og hefst hér
undirlendisræman með suðurströndu Islands og mun henni
siðar iýst.

9. Suðurjaðar hálendisins.

Eins og fyr var getið er suðausturhluti hálendisins
þak-inn jökli, sem gengur fram á hvern múla og niður i hverja
dalskoru; það má svo heita að ailur jaðar hálendisins i
Austur-Skaftafellssyslu sé hulinn hjarnsnjó og
skrið-jöklum. það eru aðeins smáhálsar og fell, sem ganga út
undan jöklinum og hlifa bygðinni fvrir ágangi iss og vatna.
Vér munum þá stuttlega geta þessara fjalla og taka þar til
er fyr var frá horfið. Upp af Hornafjarðarundirlendi gengur
Hoffellsdalur og er Setbergsheiði (2200’) að austan, en
Hoffeilsfjail (2300’) gengur fram að vestan1). Hinumegin
við það fjall falla niður vesturkvislar Hornafjarðarfljóta, og er
Svinafelisf jail (1039’) þar á söndunum fyrir neðan
jökul-röndina. Pá gengur fram mikili fjallsrani fyrir smman
fljótin, og heitir yzti múlinn Yiðborðsfjali (1689’), en
fjöllin hækka upp eftir og verða uppi við jökul yfir 3000
feta há. Pessi fjallsálma skilst af djúpum og þröngimi dal
(Kolgrafardal) frá brattri fjallsegg, sem heitir Fláfjall (3627’),
þá gengur Flájökuil fram á sandana, og svo koma
Heina-bergsfjöil (3369’) og Hafrafeii (3181’) milli jökla.
Há-lendisröndin er hér öll grafin i snjó, og fjöll þessi eru
að-eins klettahryggir útundan hjarninu og milli
skriðjökuls-straumanna; uppi i jökulröndinni eru vmsir háir tindar, og
er Humarkló (4140y) upp af HeinabergsfjölJrun einn hinn
hæsti. Suður af Heinabergsjökli niður við sancla
erSkála-fellshnúta (1893’) og suður og vestur af henni ganga há
fjöll á löngu svæði útundan jöklinum, og aðskilja þau Myra-

’l A 16. og 17. öld var alloi’t farin Fjallasýn fráHofielli í
Fljóts-dalshérað, en sá fjalivegur tókst af vegna jökla.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0270.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free