- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
258

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

258

Suðurjaðai- hálendisins

Breiðamerkurfjall (2958’) miklu neðar, irmgirt af jöklum

á alla vegu, og má það teljast til rótarfjalla Öræfajökuls.

Öræfajökull er afarmikill höfði, sem gengur suður úr

Vatnajökli, er hann að miklu leyti jöklum hulinn, en undir-

fjöllin koma þó fram á milli skriðjökulstanganna. Jöklun

um i Öræfum mun siðar lýst i jöklaþættinum, en eldgosum

i eldfjallaþættinum. Öræfajökull er að framan óreglulega

strýtumyndaður og efst á honum er snjófiötur með smá-

tindum í kring, þar hefir aðaleldgigurinn liklega verið upp-

runalega. Af hnúkum þessum eru merkastir Knappur

(5900’) og Rótarfjallshnúkur (5890’) syðst, enHvanna-

dalshnúkur nyrzt, hann er hinn hæsti hnúkur á Islandi,

6752 fet yfir sævarmál. Norður af Hvannadalshnúk lækkar

jökulinn aftur og myndast hvilft milli Öræfajökuls og Vatna-

jökuls, sem kölluð er Hermannaskarð, 4300 fet yfir sjó.

Utundan Öræfajökli ganga margir höfðar. hryggir og múlar.

en skriðjökulstangar um skörðin milli þeirra, að austanverðu

er Ærfjall (1950’), Kviskersmúli (2000’) og Vatnafjall

(3044’), þá er að framan Staðarfjall (3847’), Stórhöfði

(2499’) og Hofsf j all (2371’), en að vestan Goða f j all (2075’),

Rótarfjall (2913’), Sandfellsheiði (2800’), Svínafells-

heiði með Skarðstindi (3445’), Hafrafell (3742’) og

Hrútsf j allstindur (5976’) þar upp af, en norðvestast er

Skaftafellsheiði með Kristinartindum (3589’). Vestan

við Skaftafellsheiði gengur inn Morsárdalur, sem tak-

markast hhiumegin af allmiklum fjallakiasa, er einu nafni

heitir Skaftafellsfjöll og eru þau umgirt af jöklum,

nema á stuttum spöl syðst; norður við jökul eru þar háir

tindar (fumall 4077’, Miðfellstindur 4558’), en suður að

söndunum liggja hálsar og núpar og er Jökulfell (3458’)

syðst og í hlíðunum við Morsárdal austur af fellinu er Bæj-

t

arstaðarskógur. Ur fjölliun þessum gengur tangi vestur i
Skeiðarárjökul og þar eru Færines tindar (3314’). Milli
Færiness og Súlutinda hefir Skeiðarárjökull fallið niður á
sandana. Fjalllendum þeim, sem ganga út undan
Vatna-jökli milli Skeiðarárjökuls og Hverfisfljóts, höfum vér
áður lýst.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0272.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free