Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
260
Suðurjaðai- hálendisins
fyrir vestan er Arnarstakksheiði, framan i henni eru
Víkurhamrar (908’), snarbrattir niður að fjöru; uppaf
Arnarstakksheiði er Heiðardalur og i honum Heiðarvatn
(229’j. Upp af Vik gengur dalskora, er skilur Reynisf jall
(1061’) frá Amarstakksheiði, en út af Reynisfjalli, sem er
snarbratt að framan, eru Reynisdrangar, en skamt þar fyrir
vestan er Dyrhólaós og Dyrhólaey (382’), syðsti höfði á
landinu. Fyrir vestan Reynisfjall dregst hálendið frá sjó
og undirlendið breikkar; fjöllin næst jökli eru 2000 til 2700
fet á hæð og mjög sundvu’skorin af gljúfrum með tindum
og hömrum, og draga heiðapartarnir nafn af bæjunum fyrir
Collingxvood.
46. mynd. Hiörleifshöfði.
neðan; á láglendinu eru nokkur einstök smáfell og er
Pétursey (905’) þeirra merkast. Bygðin imdir þessum
fjöllum, er vér höfum talið, heitir Mýrdalur og er það
mjög grösug sveit, þar sem jökulsár ná eigi til að skemma,
þó móbergsfjöllin séu brött er hér viða gróður upp á brúnir.
Þegar kemur vestur fyrir Fúlalæk tekur við
Eyjafjalla-sveit, eru fjöllin upp af henni há, brött og hömrótt, múlar
ganga fram að láglendi og djúpar dalskorur og gljúfur á
milli. Fjöll þessi eru undirfjöll Eyjafjallajökuls og öll úr
móbergi og hnullungabergi með grágrftislögum innan inn;
þar eru hellrar margir og stórir og fagrir fossar viða. Fyrir
vestan Skógasand gengur Hrútafell(l 524’), tindóttu r móbergs-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>