Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Skeiðarársandur..
265
lians afarháar jö’kulöldur. frá jöklinum er aöeins 700 faðma
vegur niður að sjó. vestur af jökulendanum er KviármýrL
Við suðvesturhorn Kviárjökuls er breið rás niður frá
jöklin-um. sandur með lausum björgum, þar eru kölluð
Stóru-grjót, haldast sandar þaðan vestur að Hnappavöllum með
ymsum jökulkvíslum, sem koma lir gljúfrum i undirfjöllum
Öræfajökuls, en niður af þeim eru graslendi allmikil, og
haldast þau fram með bygðum í Öræfum inn fyrir
Svina-fell. þó sandblettir og sand.rákir séú i þeim viða fram með
jökulkvíslunum og fyrir jöklaendunum, en að neðan
tak-markast þau alstaðar af aurum og kvislum Skeiðarár.
Gras-lendi er þar og nokkuð í fjöllunum neðantil, einkum þó i
Skaftafellsheiði. Mórsárdalur er aftur á móti allur i sandi,
þó gróður sé í hliðunum beggja megin.
Skeiðarársandur er hinn viðáttumesti jökulsandur
á Islandi, og tekur yfir 17 ferh. milur; sandurinn er
mjóstur að ofan næst jökli, og er vegurinn yfir hann
þar frá Skaftafelli að Lómagnúp rúmlega 31 2 mila (rúmar
4 milur að Núpsstað), að neðan er hann miklu breiðari,
strandlengjan frá Knappavallaós að Hvalsiki er 7^/2 mila
á lengd. Ofan til er á sandinum næst jökli stórgerð
möl og sandur innanum, en efnin verða smágerðari er neðar
dregur, svo þar eru miklar leirur og leðja, enda er þar
ein-tómur vaðall af kvíslum og uppistöðuvötnum, sem altaf eru
að breytast og næst malarkambi eru stór lón og flæður,
sem taka yfir mikinn hluta af sandinum, liafa vötnin margar
rásir eða ósa út í gegnum malarkambinn, og hafa þeir fyr
verið nefndir. Stórvötnin koma undan jöklinum i miklum
elfum, en kvislast svo neðar og fjöldamargar kvislir koma
upp úr sandinum sjálfum alllangt frá jökli, af þessu leiðir
að sandurinn er tiltölulega þur ofan til, en eintómt foræði
hið neðra. Frá jökulsporði niður að sjó er sandurinn mjóstur
rúmlega 21 2 mila, en breiðastur í krikunum beggja megin
við jökulinn, um 4 milur. Gróður er enginn á
Skeiðarár-sandi sem heita má, litla hagatægjur eru við og við á
mið-sandinum nærri jökli, þegar hlaup ekki eyða þeim, og við
sjóinn eru allvíða strjálir meltottar. Við Skeiðarársand er
töluverður reki af timbri og brimrotuðum fiski og við
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>