Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Meðallaud. Landbrot.
269
verður stöðugt fyrir miklum ágangi bæði af sandroki og
vötnum og er þvi fátæk og landgæðalítil. Norður og austur
af Meðallandi er Landbrot, þar er mjög einkennilegt
landsiag, að sunnan eru sandar sem i Meðaliandi, og að
austan Landbrotsvötn, sem Skaftá rennur saman við.
Hraun-röndin er há og á henni eða undir henni standa bæirnir
og er allbreitt grasiendi þar fyrir neðan, milli hrauns og
sanda. Hið gámla Landbrotshraun er að ofan alsett
hraun-hólum, gjallkeilam og hrúgum með gigsmynd; hólar þessir
eru svo margir að vart verður tölu á komið. Ailmikið
grasiendi og hagar eru i hóium þessum, einkum i dældunum
milii gjallhóianna. Sumir hólarnir eru holir að innan og
viða eru þar heiirar. I hvilftunum vestur af
Landbrots-hólunum koma upp margir iækir á takmörkimi hins gamia
og nýja hrauns.
Fyrir vestan Kúðaiijót liggur hinn mikli sandfláki. sem
kallaður er Mýrdaissandur, hann nær norður með Hólmsá
upp að Einhyrningsfjölium og takmarkast að vestan af
Mýr-dalsjökli og Höfðabrekkufjalli og nær syðst og vestast við
sjó að Vikurklettum i Mýrdal; sandurinn mjókkar norður
eftir og er nyrzt ekki nema mila á breidd, en sunnan tii
4—5 milur; lengdin frá norðri til suðurs er 5 mílur og
flatarmálið nærri 11 ferh. milur. Austurhlutinn er eintómt
sandorpið hraun, en vestan til eru viðast á yfirborði vikrar,
sem Katia hefir stráð yfir nágrennið; sandurinn er þvi
kol-svartur á að lita, nema þar sem vatnsrásir eru, þar hefir
hinn lóttari vikur skolast burtu, en jökulkvíslarnar borið
fram hnuilunga og möl af blágrýti og móbergi og er þvi
grár blær á sandinum, þar sem vötn hafa runnið.
Vestur-hluti sandsins er alveg gróðrarlaus, en austan til, þar sem
hraun eru undir, eru gróðrarteygingar langt upp eftir.
Sandurinn er stórgerðastur næst jökli, en nærri sjó er
rok-sandur viða. Jökulhlaup úr Kötiu hafa mikii áhrif á
sand-inn og hafa breytt honum mjög, við gosin bráðnar
Kötlu-jökull að nokkru leyti, mismunandi eftir ákafa gosanna,
flæðir þá jökulvatn með stórum isjökum um allan sandinn,
hlaupið ber með sér grjót, sand og vikur og dreifir þvi um
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>