Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
278
Suðurlandsundirlendi.
gefnar og mjrlendar, en ekki sléttar nema á köflum, þar
eru holt og ásar margir, og mýrar i lautunum. í eystri
tungunni fyrir neðan Bræðratungu eru rennisléttar engjar,
en ofar eru smáhæðir og hólar, eins er nesið milli Brúarár
og Hvitár niður af Skálholti rennislétt, en annars er vestri
tungan viðast óslétt, smáir holtahryggir með mýrasundum á
milli; mest kveður að ásum þessum að austanverðu næst
Tungufljóti, þar er holtaröð norður með fljótinu, Laugaás,
Reykholt og Selmúli hæztur. Milli Brúarár, Hvitár og
Sogs, fyrir vestan og sunnan Biskupstungur er viðáttumikið
hérað, sem heitir Grimsnes, vestan og norðan að þessari
sveit liggur Lyngdalsheiði og fjöllin við Laugardal. Nyrzt
i sveitinni, undir hálendinu heitir Laugardalur, þar eru
skógivaxnar hliðar og fagurt útsýni yfir grösugt sléttlendi,
ár og vötn og eru þar hverir margir. Að vestanverðu i
Grímsnesi eru viða skógivaxin hraun, en að austan og
norðan mýrlendi mikil og grassléttur; syðst er land fremur
óslétt og hæðótt fram með Hvítá, þar eru smáásar og holt
úr blágrýti og móbergi og austast Hestfjall (1008’) en norðan
við það Hestvatn. Ofarlega i miðju Grimsnesi austur við
Brúará er Mosfell. einstakt fell á sléttlendinu; þar norður
og vestur af eru Apavatn og Laugarvatn. Upp með Sogi
gengur dalur allmikill til sveitar þeirrar, sem kölluð er
Grafningur, og tengir hana þannig við
Suðurlandsundir-lendið. Grafningur liggur sunnan við Pingvallavatn, þar
er lítið um mýrlendi, en hálsar margir og lynggróður í
hliðum, bæirnir standa í dalverpum flestir nærri vatninu.
Undirlendið er hér yfirleitt litið, mest við suðvesturhorn
Pingvallavatns, þar sem heita Nesjavellir, þar gengur breiður
dalur inn milli Grafningsfjalla og Dyrfjalla alveg sléttur i
botni, en sléttan er mestöll hulin hrauni, en þó grasivaxnir
vellir fyrir sunnan. Sogdalurinn takmarkast af lágum hálsum
að vestan en af skógivöxnum hraunum að austan og sjást
þess mörg merki (malarkambar, skeljar og leirbakkar) að
sjór hefir til forna náð langt upp í dalinn.
Yestasta bygðin á Suðurlandsundirlendinu heitir Olfus,
hún takmarkast að sunnan af sjó og Olfusárósum, að vestan
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>