- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
279

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Ölfus. 279

af Selvogsheiöi, að norðan af fjallshliðum
Reykjanesfjall-garðs, að austan af Olfusá, og nær nokkur hluti sveitarinnar
upp með Ingólfsfjalli að austanverðu. Yestast i Olfusi taka
hraunflóð mikil yfir alt láglendi, og eru þar auðnir hið efra
og sandar við sjó frá mynni Ölfusár út fyrir Porlákshöfn.
Uppi undir hlíðinni er bæjaröð, Hliðarbæir, sem fyr voru
nefndir, þar er sauðgróður góður og landshættir aðrir en
austar i sveitinni. Austur af hraunbæjunum fyrir neðan
Lágaskarð taka við graslendisflákar miklir, og eru þeir ein
af hinum fegurstu og flötustu grassléttum á Islandi; þar eru
engi ágæt og slægjur óþrjótandi, en stundum all-blautt,
einkum i henni svokölluðu For milli Arnarbælis og
Bæja-þorps; hallinn á engjasléttum þessum er mjög litill, svo
sumstaðar neðantil i Olfusi má sjá mun á vatni í mýrum og
lækjum þegar stórstreymt er. Undir grassverði er alstaðar
ægisandur og sést hann i öllum rásum; alt Olfusið eru
upp-grónar gamlar eyrar og sævarbotn, enda sjást þess viða
merki að héraðið fyrrum hefir verið i sjó. Niður um þessa
grassléttu hlykkjast Yarmá, sem kemur úr Hengladölum, en

r

vatn úr Forinni safnast i Garðsá. A sjálfu flatlendinu miðju

standa engir bæir. þar er of blautt, þeir eru utan við mýr-

arnar, sumpart nærri fjallahlíðunnm, sumpart á ásum og

hólum austan til. Holt þessi liggja i röð hérumbil frá norð-

austri til suðvesturs, eru sum úr blágrýti, sum úr móbergi.

A holtum þessum eru margir bæir, nokkrir eru undir hliðum

Ingólfsfjalls, Reykjafjalls og Gnúpafjalls en flestir fyrir

vestan Varmá standa í þorpum eða hverfum, kippkorn fvrir

neðan fjöllin (Bæjaþorp, Hjallahverfi, Hraunhverfi). Olfusá

rennur niður með sveitinni að austan og eru ósar hennar

mjög breiðir, og yflr þá að sjá sem fjörður væri, eyrar eru

þar miklar og vatnið grunt, en svo dragast ósarnir saman
t

að útfallinu hjá Oseyrarnesi, og er þai- fvrir ströndu ferskt
vatn á yfirborði sævar alllangt út.1)

’) Bjarni Sæmundsson mældi 1896 sævaraeltu viö Eyrarbakka og
torlákshöfn og var ln’in af>eins 26,fl2 og 20,2 pro mille (Andvari XXII,
bls. 151).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0293.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free