- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
334

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

334

Fl.jót og ár.

kemur úr Snæfelli, og rennur suður milli Pjófahnúka,
en beygir svo austur i Eyjabakkavötnin, síðan Hafursá og
Laugaá. Jökulsá fellur með fossum og hávöðum niður i
botninn á Fljótscial, og er ströng og stórsteinótt niður dalinn,
þar er dráttur á henni hjá Kleif. Fyrir utan múlann taka
við slétt engjalönd niður að Leginum, og þar sameinast
Jökulsá og Kelduá skömmu áður en þær falla út i
Lagar-fljót, sem miklu fremur ætti að kalla vatn en fljót.
Lagar-fljób er i raun réttri mjótt og aflangt stöðuvatnstrog holað
út i blágrfti. Lögurinn er fjórðungur úr milu á breidd við
As, vatnsborðið liggur 83 fet yfir sævarmáli og dýptin er
350 fet, svo botn Lagarfljóts liggur þannig 267 fetum neðar
en sævarflötur. Vatnið hefir verið töluvert lengra, en efsti
hluti þess hefir smátt og smátt fylst af árburði, og eru þvi
nú sléttar mýrar og engjar fyrir vatnsbotninum.
Straum-urinn i Lagarfljóti er mjög litill, og á þvi er nokkur
jökul-litur, þvi hið smágjörva leirdust, sem jökulárnar bera, nær
ekki að setjast til botns.1) Fyrir utan Velli mjókkar fljótið
og giynnist, og þar er vað á Einhleypingi, og á ýmsum
stöðum hafa menn haldið ferjur. Hjá Kirkjubæ er foss i
fljótinu, ekki hár (4 faðmar) en mjög vatnsmikill, ey skiftir
honum i tvent. Nú er komin brú á Lagarfljót rétt fyrir utan
Egilsstaði mikið mannvirki, 480 áhia löng og 4 álna breið,
bygð á tréstaurum, sem reknir eru niður i fljótsbotninn ;2)
véla-báta nota menn nú til flutninga á fljótinu. Inst að
vestan-verðu rennur Hengifossá i fljótið, i henni er hár og fagur
foss, Hengifoss, sem talinn er 350 fet á hæð, sama megin
fellur Rangá i Fellum út i fljótið. Að austanverðu fær
Lagarfljót allmikið aðrensli, fyrst Gilsá, svo Grímsá,

Um orminn í Lagartíjóti gengu i gamla daga miklar sögur og utn
iieiri skrímsli, sem þar áttu að vera. Sbr. Isl. f jóðs. I, bls. 638—641;
Ferðabók Eggerts Ólafssonar II, bls. 793—797. Landfræðissaga I, bls.
256; II, bls. 111, 229—230. Tímarit Bókmentafélagsins, XXII, bls.
134—136. Svipaðar skrímslasögur hafa gengið um Mjösen og önnur
norsk vötn. Bjarni Sæmundsson befir lýst Lagariijóti í Andvara 1899r
bls. 55-58.

2) Mynd af brúnni er í Almanaki fjóðvinafélagsins 1908.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0348.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free