Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
84-4
Stöðuvötn. 368
faðmar. í Stífln er Stífluvatn, lítið og grunt, og annað
vatn i Tungudal, og eru háir hólar fyrir framan bæði vötnin.
Yestur af Miklavatni er Flókadalsvatn og Hópsvatn
(Hólmsvatn) og rennur Fiókadalsá i gegnum Jþau.
Ólafsfjarðarvatn likist að vmsu Miklavatni i Fljót-
um, það er nærri hálf mila á lengd og skilur breitt sandrif
það frá sjó, en fyrir botni þess og fram með þvi eru engja-
t
lönd, í botn þess rennur Olafsfjarðará, en útúr þvi grunnur
ós til sævar, sem fyrrum hefir verið miklu dýpri. Ytri hluti
vatnsins er mjög grunnur 1—6 fet, en að innan er vatnið
r
4 faðmar á stóru svæði og dýpst b1/^ faðmar.1) A yfirborði
og 1 x/a—2 faðma niður er vatnið ósait, en þvi saitara sem
neðar dregur, saltmegn vatnsins er þó eðlilega mjög
breyti-legt eftir dýpi óssins, leysing i fjöllum og aðrensli ánna.
Pegar ósinn hefir verið djúpur hafa sjófiskar gengið þangað
einsog i Miklavatn, og á 18. öld var þar allmikil veiði af
þyrsklingi, ýsu, lúðum og skötu upp um is á vetrum,2) en
nú er þar silungsveiði. Héðinsfjarðarvatn er svipað en
minna. I Eyjafjarðarsýslu eru annars fá vötn, sem nokkuð
kveður að, nema fjallatjarnir, og liggja þær oft hátt, i
djúpum hamrabotnum. Af þeim eru einna merkastar
Nykratjörn i Svarfaðardal (2180’), hún kvað vera 9 faðma
djúp, og Hraunsvatn (1447’) i Öxnadal, 32 faðmar.
Kringum bæði þessi vötn eru hrikalegir hamrar, stórurðir
og skriður.3) Pá er Hólavatn inni i Eyjafirði girt háum
jökulöldum.
I Pingevjarsýslu er Ljósavatn alkunnugt, það er rúmur
fjórðungur úr milu á lengd og dýpið er víðast 8 faðmar, og
mest 16 faðmar, i það rennur Kambsá, og úr þvi Djúpá til
Skjálfandafljóts; þar er ailmikil silungsveiði. Norður i
Hval-vatnsfiröi er Hvalvatn, það er grunt og sandrif fyrir utan,
og þröngur ós úr því með töluverðum straumi. A heiðunum
!) Andvari 1898, bls. 129-30, 1901, bls. 64.
2) Ferðabók Eggerts Ólafssonar II, bls. 632-633. Veturinn 1882
—83 kom mikið síldarblaup í Olafsfjarðarvatn.
3) Andvari 1898, bls. 122-128, 142—143.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>