Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Vötn á Norðurlandi.
355
austur af Bárðardal eru mörg vötn og sum allstór, þau eru
flest á Mývatnsheiði. Hin helztu eru Hólavötn,
Sand-vatn syðra og Kálfborgarárvatn. sem er stærst. l?á
er Mársvatn vestan við Laxárdal, Arnarvatn, suðvestur
af Mývatui, og Sandvatn nyrðra hjá Vindbelgjarfjalli,
mjög vogskorið, hraun hafa i fyrndinni skilið það frá
Mý-vatni, úr þvi rennur Sortulækur i Laxá. Suðvestur af
Sel-landafjalli er Svartárvatn, það er grunt, einn faðmur
mest, að því liggur hraun og roksandur; þar fyrir vestan
er Brúsatjörn, og i Suðurárbotnum þar fyrir sunnan við
Odáðahraun eru ýmsar tjarnir. Pá er Ishólsvatn suður
af Bárðardal, það er talið djúpt vatn (30 faðm.). í
Reykja-dal er Vestmannsvatn og tvö minni vötn, i það fellur
Reykjadalsá og úr vötnunum Eyvindarlækur i Laxá.
Vest-mannsvatn kvað vera 7 faðma djúpt og lieíir verið mikið
veiðivatn. I Reykjahverfi er Langavatn og fleiri
smá-vötn, sem Mýrakvísl hefir aðrensli úr. A sandinum fyrir
botni Axarfjarðar er Vikingavatn að vestanverðu, það er
vogskorið og grunt og 3 álna dýpi mest.
Stærsta og merkasta vatn i þessum hluta landsins er
Mývatn, það liggur á hálendinu 924 fet yfir sævarmáli,
mitt á milli Skjálfandafljóts og Jökulsár, sjö mílur frá sjó.
Stærð Mývatns vita menn ekki með vissu, en líklega er
vatnið rúm hálf ferhyrnd mila að flatarmáli, en það er svo
vogskorið að ummál þess hefir verið talið 7—8 milur. Hraun
liggja alstaðar að vatninu nema á kafla að norðan, og
hraunbotn er i þvi viðast hvar; líklega er það svo til orðið,
að vatn úr ám og uppsprettum hefir safnast í lægð, sem
fram var komin við landsig á eldbrunnum jarðvegi, en síðan
hefir vatnsfiöturinn mjög breyzt við landskjálfta og
eldsum-brot og hraun þau sem þangað hafa runnið. Suður og
vesturhluti Mývatns er hin stærsti samanhangandi vatnsfiötur,
þar heitir Syðri-Flói og syðsta vik hans Garðsflæða. t’aðan
ganga firðir og flóar til norðurs og vesturs. Mestur af
þessum fjörðum er Ytri-Flói, sem gengur upp að
Reykja-hlið; vestan að Ytri-Flóa liggur Neslandatangi, allbreitt nes,
þá kemur Neslandavik að Belgjarnesi og fyrir sunnan það
uO
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>