- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
356

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

84-4

Stöðuvötn. 370

gengur breið vík til vestnrs upp af útfalli Laxár úr vatninu.
Mývatn er mjög grunt, að norðan, norðvestan og norðaustan
er að jafnaði ekki nema 2—4 feta dýpi, en austur og
suður-hluti vatnsins er dýpri, alt að S1/^ faðmar. Ur Mývatni rennur
Laxá, vatnsmikil á. en i það aðeins fáir smálækir, helztur þeirra
er Grænilækur úr Grænavatni, þar hlýtur þvi að vera annað
aðrensli. enda má þar alstaðar sjá óteljandi uppsprettur
koma undan hraunum i vikum og skorum og lika á botni
vatnsins. Sumar af uppsprettum þessum eru kaldavermsl,
en margar eru volgar, vatnið er þvi heitara en við mætti

G. Eberhardt.

60. mynd. Slúttnes í Mývatni.

búast og af þvi leiðir aftur að gróður og dýralíf er þar i
meira blóma en i flestum öðrum vötnum islenzkum. Fram
með austurströndu Mývatns eru margbreytiieg hraunklungur
og að norðaustan runnu á 18. öld hraun frá Leirhnúk og
Bjarnarflagi út i vatnið. I Mývatni eru milli 40 og 00
eyjar og hóimar, eru sumar eyjarnar háar gigeyjar, sumar
flatar hrauneyjar. Af hærri eyjunum eru þessar helztar
(taldar frá norðri til suðurs): Geitey, Háey, Hrútey og .Mikley,
og eru á sumum eyjunum hrúgur af smáum eldgigum. Af
hinum lægri eyjum er Siúttnes alkunnast, fögur eyja
skógi-vaxin. A vatninu er mikið fuglalif og sérstaklega mikið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0370.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free