- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
364

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

84-4

Stöðuvötn. 378

hluti vatnsins er samanhangancli iiói, en austur úr þvi ganga
tveir firðir og fjöllótt nes á miili, nyrðri fjörðurinn er
breið-ari og niður að enda hans hefir hraun runnið; þar fellur
I’órisós norður i Köldukvisi. Dýralíf og jurtalif mun mjög
litið i vatninu og eigi vita meun hvort þar er silungsveiði.
Kringum vatnið eru eintóm öræfi og varla nokkur gróður.

Undir Langjökli liggur Hvitárvatn, sem Hvitá kemur
úr, 1386 fet yfir sjó. það er stórt vatn, rúmlega ll/a mila á
lengd og hálf míla á breidd. Vatnið er aflangt og gengur
frá suðri til norðurs, en suðurhlutinn beygist þó nokkuð til
suðausturs. Vestan að Hvitárvatni iiggur Langjökull, og
ganga tveir stórir skriðjöklar úr honum niður i vatnið,
beggja megin við Skriðufell, hömrótt fjall i jökulröndinni.
Framan af jöklunum brotna við og við isstykki, sem svo
synda i vatninu þangað til þau bráðna. Norður úr vatninu
gengur vogur, sem heitir Karlsdráttur, fjöiium luktur öllu
megin og með mjómn imigangi, annars eru engir firðh- út
úr því. Norðurhluti vatnsins kvað vera dýpri en
suður-hlutinn, 5—6 faðma djúpur. Jöklar og ár bera mikið af aur
og sandi i vatnið, svo það grynnist. Austan i Hvitárvatn
rennur Fróðá og svo Fúlakvisl, jökulá vatnsmikil, sem
kemur undan Langjökli norður af Hrútafelli i Pjófadölum,
en neðar rennur Svartá i vatnið og kemur önnur kvisl
hennar úr Sandvatni hjá Dúfufelli. Ur Hvitárvatni rennur
Hvitá, mikið vatnsfall. Hvitárvatn hefir fyrrum verið miklu
stærra og dýpra, það sést á fornum fjöruborðum i nálægum
hliðum. A afréttinum norður af Hreppum er Grænavatn,
sem Laxá kemur úr, en annars er fátt um vötn á svæðinu
sunnan við Hofsjökul, þar er halli töluverður niður að
aðalánum, svo vatn fær afrensli um margar ár og kvíslar.
Sunnan undir Langjökli er Hagavatn, upp af þvi gengur
langur klettarani (Hagafell) snjólaus upp i jökul, hafa
skrið-jöklar klofist um það fell. I Hagavatn rennur kvisl úr
smávötnum vestur með jökulrönd nærri Lambahliðum, en
úr þvi Farið niður i Sandvatn með mörgum eyjum, upp
af Uthliðarhrauni. Þaðan rennur svo Arbrandsá, sem siðar
heitir Tungufijót.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0378.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free