Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Jöklar.
5
lög af grásteinshrauni innanum og samanvið. Jöklarnrr
eiga hægt með að vinna á þessum bergtegunclum og
jökul-árnar bera mestu kynstur af grjóti og möl niður á láglendi,
en hið smágjörva dust verður að leðju, sem berst langt út í
sjó. Sumir hafa ætlað, að jöklar á Islandi hafi aukist siðan
i fornöld, en engin tilhæfa er i því. Af sögum og
annál-um er það auðséð, að stærð jökla og eðli hefir yfirleitt
verið hið sama í fornöld einsog nú; stöku
skriðjökulstang-ar hafa gengið fram og aukist, en aðrir hafa minkað og
horfið, jökulár eru og mjög breytilegar, einkum i
Skafta-fellssýslu, en i sögunum eru nógar heimildir fyrir því, að
eðli jökla og jökulfljóta, stærð þeirra og áhrif, hafa verið
hin sömu einsog á voriun dögum, smábreytingar, sem
orðn-ar eru, hafa ekki haft verulega þýðingu fyrir heiidina.
Jökulhlaup. Pað ber við eigi ósjaldan á Islandi að
jöklar brotna i sundur, bráðna og umbreytast af vatnagangi
og eldgosum, og steypast þá mikil flóð yfir hin næstu
lág-lendi með jakagangi, aur og grjótburði. Pó er það aldrei
nema örlitill hluti jökla tiltölulega, sem bráðnar og brotnar
á þenna hátt, jafnvel hin mestu eldgos hafa eigi nægilegt
afi til þess að bræða stórjökla. Hlaup eða jökulhlaup koma
vanalega alt i einu, svo engan grunar fyr en býsnin dynur
yfir. Pegar minst varir taka brúnir jökulsins að lyftast,
hann rifnar og háir hvellir heyrast langar leiðir, en vatnið
vellur og fossar fram úr hverri rifu, unz jökulbjörgin
sundr-ast, vatnið fær fulla framrás og þeytir jökunum út um alla
sanda og stundum út í sjó. Mjög mikill munur er á stærð
hlaupa og þau geta verið margvisleg og haft ýmsar orsakir.
Stundum stifla skriðjökulstangar vatn i gljúfrum, sern svo
skyndilega brýzt fram, sumstaðar safnast jökulvatn i polla
eða tjarnir i jökulhvilftum og fióir siðan út úr, niður í
gljúf-ur jökulánna, stundum getur vatnssafnaður innan i skriðjökli
ekki fengið framrás, svo jökullinn bólgnar út, unz vatnið
slitur öll bönd og fiæðir yfir nágrennið, og á ýmsan annan
hátt geta hlaup komið i jökulár, einsog fyr hefir verið getið.
Sjaldan eru þó þesskonar hlaup stórhrikaleg eða áhrifamikii,
þó mikill vöxtur með jakagangi komi í ár og töluvert af
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>